Dvöl - 01.04.1940, Blaðsíða 58

Dvöl - 01.04.1940, Blaðsíða 58
136 D VÖL Friðgeir H. Berj» Gftir .lakob liristiiisson, iræðslumálastjóra Sumarið 1914 fór ég vestur um haf og settist að í smábænum Wynyard í Saskatchewanfylki í Canada. Bær þessi er í svonefndum Vatnabyggðum, en þær eru ein- hverjar fjölmennustu íslendinga- byggðir vestan hafs. Landar mínir reyndust mér í hvívetna hinir beztu drengir og gerðu sér allt far um, að mér mætti líða sem bezt. Samt sem áður þjáðist ég talsvert af heimþrá og óyndi fyrsta sprettinn. Það var einhverju sinni haustið 1914, að áliðnum degi, að ég sat einn í herbergi mínu, eins og oft- ar. Úti var norðan kuldastormur og úr gluggunum blöstu við naktir skógarlundar og eyðileg akurlönd. Haustið settist að mér. Hugurinn varð dapur og mig langaði heim. Þá var skyndilega drepið á dyr og inn kemur maður, sem ég hafði ekki áður séð. Hann var meðal- maöur á hæð, fríður sýnum, þykk- ur undir hönd og þrekvaxinn svipurinn mikill, gáfulegur, athug- ull og nokkuð þungur; auðsjáan- lega staðgóður drengur, sem bjó yfir ríku skapi og gekk sínar eigin götur. Hann kvaðst heita Friðgeir Berg og vera nýkominn til bæjar- ins. Samræður hófust þegar með okkur, og ekki hafði margt á góma borið, áður en ísland varð efst á baugi. Þótti mér heldur en ekki hnossgæti að eiga tal við hann um það. Hann vissi allt um hag þess, og hafði hvarvetna fylgzt með mál- um, svo að mig rak í rogastanz, þegar hann sagði mér, að hann hefði dvalið vestan hafs í sam- fleytt 15 ár. Hann virtist þaul- kunnugur skáldskap íslendinga að fornu og nýju og kunni margt kvæðið utan að. Og um allt voru skoðanir hans skýrar, afdráttar- lausar og fullar af djúpri hlýju til ættlands og þjóðar. Þótti mér mikils um þetta vert. En þó var eitt, sem frá bar og mest vakti at- hygli mína. Það var málfar mannsins. Þorri landa vestan hafs hefir varðveitt íslenzku sína furöulega vel. En ef þeir eru langdvölum vestra eða alast þar upp, verður tungutak þeirra og hljómblær ís- lenzkra orða undantekningarlítið með allsterkum enskukeim, svo sem eðlilegt er. Ekki veit ég hvern- ið Friðgeir Berg hefir farið að því að sneiða hjá þessu skeri, en hitt er víst, að málfæri hans var því líkast, sem komið hefði hann utan af íslandi þenna sama dag. Og leikni hans í því, að velja hugs- unum sínum kröftug, kjarngóð og rammíslenzk orð, bar svo langt frá
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Dvöl

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.