Dvöl - 01.04.1940, Page 70

Dvöl - 01.04.1940, Page 70
148 D VÖL Lán og tjón, já, llf og morð, liðug fceðir tunga, því er vert að vanda orð og venja hana unga. Viff Landeyjasand. Hrynur sjór úr hryggjum boða, hringlar þung við strandir möl, hvít er breidd um fjöru froða, ferjan nemur stað á kjöl. Land er tekið varir við. Syngur œgir sínu lagi, samrómaðir erum við. Staka. Þá er drauma þrotin stund, þá er sjónarhringur fagur, þá skal kasta þungum blund, þá er runninn mikill dagur. Stormurinn og stráið. Dags morgni einum á, þá álfröðull skreytti frón, í beð ég byrgður lá. birtist mér þaðan sjón. Öndvert i gegn um gler gat ég að líta meir, einvíg í augsýn mér ójafnir háðu tveir. Stormur með sterkan mátt stríðskempan önnur var, hann fékk við heystrá átt hamrammar sviftingar. Hann sló og hrakti’ — en það hristist og beygði sig — fékk þó ei fœrt úr stað. Furðaði þetta mig. Eg tók til orða þá, „Ó, hvílík dirfska Ijót; vogar þú, veikast strá, vindanrm krafti mót fangbrögð að fœrast í, fis jarðar veikt og smátt? Lokið mun þínum því þrótti og fjöri brátt. En það fekk afstaðið óvœgið kára strið; hann þreyttist þarna við, þaðan hann fór um síð. En veslings stráiö stóð stutt þar á eftir þó, því sláttumanns eggin óð og óvörum burt það sló. Heystrá ég einnig er allt eins á margan hátt. Andviðri amar mér á œfinnar vegum þrátt; álíkan endi finn, óvörum dauöinn slœr og œfiþráð afsker minn, Alvaldur, þú veizt nœr. Á hestbaki. Hestar fœlast hrynur sjás, hringa makka og taka á rás. Nú skulum ríða hátt til hlíða, handan undir þennan ás. Fýkur reykur um götugrjót glymja tauma stangarmót, tindrar i eldum köldum, á kvéldum, klársins stórum undir fót. — Stökur. Sama lield ég vísna vana veróldin sem hefir beitt, þótt hann mínum þönkum bana þúsund sinnum hafi veitt. Hendingar og höfuðstafi hangi’ ég eins og snöru við, í tízkunni ég tolli og lafi, — töngla á þeim forna sið. Úr Líkafrónsrímum. - Það er vandi að velja sér víf í standi þrifa, en ólánsfjandi ef illa fer í því bandi að lifa.

x

Dvöl

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.