Dvöl - 01.04.1940, Page 71

Dvöl - 01.04.1940, Page 71
D VOL 149 Æfisöjpibrot. Ég er mceöumaður, meir en satt er það, margt vill ama að, en er þó oftast glaöur. Trega tímar slepptir, tuttugu ár og þrjú, eru aö öllu nú, livað sem er nú eftir. Það hefir sóðast svona seigt fyrir herrans náð, eins og um er spáð verður það ég vona. Allténd verð ég armur, ekki er að leyna því, klingir eyrum í skrattans skuldajarmur. Ég hefi œ úr máta elskað flösku tár. Ég er svoddan sár. Bezt er brot að játa. Fjallið fagra. — Brot — Vinda andi’ í vöggu sefur, vogar þegja og hlýða á, liaf um landið hendur vefur hvítt og spegilslétt að sjá. Straumar bindast brjóstum landa, beggja hlýna vingan má, eyjar synda, sofa, standa silfurdýnum ránar á. Ekki’ úr sporum blómstur bœrast, brjóst þeim gefa foldin kann. Vindar þora, ei hót að hrœrast, því heilög sefur náttúran, Fossar skauta fjalla stöllum, flytja’ í boga vötnin þunn, lœkir tauta í lágum föllum og lœðast voga fram í munn. Sólin klár á hveli heiða lwarma gljár við baugunum, á sér hár hún er að greiða upp úr bárulaugunum. Þegar ég smáu-----------. Þcgar ég smáu frœi’ í fold fer að sá og hlúa, hugsa ég þá um þetta liold, sem þar skal dáið búa. Ei er ég minna en önnur strá til ódauðleikans borinn, en öll þau sinni ösku frá endurrisa á vorin. Og fyrst heyið úttaugað endwrklœðir hlíðar, ég skal deyja upp á það að ég lifna síðar. Hverja stund, með hvaða snið, hinir tímar sýna, og við liver undur, almœttið ösku reisir mína. Stökur Margur fœr af litlu lof og last fyrir ekki parið. Þetta gengur þrátt um of, því er svona varið. Ástin hefir hýrar brár, en hendur sundurleitar, ein er mjúk en önnur sár, en þó báðar heitar. Ég er snauður, enginn auður er í hendi minni, nœrri dauður, drottins sauður, í djöfuls vesöldinni. Norður loga Ijósin liá loft um bogadregin, liimins vogum iða á, af vindflogum slegin. Þegar óhryggur heimi frá héðan Siggi gengur, fjöllin skyggja ekki á alvalds bygging lengur.

x

Dvöl

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.