Dvöl - 01.04.1940, Page 77

Dvöl - 01.04.1940, Page 77
DVOL 155 llöfiiiicUiriiii' Aldous Huxley er fæddur 26. júlí 1896. Faöir hans var doktor í bókmenntum, en afi hans var hinn heimsfrægi vísindamaður og líf- eölisfræðingur, Thomas Huxley. Huxley er talinn einn hinn fjölhæfasti og gagn- merkasti af rithöfundum Englendinga hin síðustu ár, en alls hafa komið út eftir hann um 30 bækur, þar á meðal 4 kvæðabækur, 5 bækur með „essays“-rit- gerðum, en hitt smásagnabækur, skáld- sögur og leikrit. Mesta frægð hefir hann hlotið fyrir skáldsögur sínar. Áður hafa birzt sögur eftir hann í Dvöl. O’Henry var fæddur 11. sept. 1862 og hét Sydney William Porter. Hann ritaði hinar stuttu og oft bráðfyndnu greinar sínar og sögur undir ýmsum dulnefnum, en „O’Henry'1 varð þeirra sigursælast. Hann vann að mörgu og fór víða um, og það, er hann sá og heyrði, var honum óendanlegt efni í smásögur hans. Hann var hugkvæmur og aðhlæginn og skopið er jafnaðarlega efst á baugi, þótt það sé stundum bland- ið sárum hörmum. Söguefni hans var oftast venjulegt fólk og venjulegir at- burðir, sem gátu þó haft hinar óvenju- legustu afleiðingar og endi. Alþýða flestra þjóða hefir tekið feginshendi smásögum hans og lesið þær sér til ánægju, og á efalaust eftir að gera það lengi enn um ókomna tíma. O’Henry dó árið 1910, 48 ára gamall. José Francés, er einn af þekktari nútíma skáldsagna- höfundum Spánverja. Herbert George Wells er fæddur 21. sept. 1866. Frá því að „Tímavélin", næstfyrsta bók hans, kom út árið 1895, hefir hann ritað milli 40 og 50 bækur. Hann heíir skrifað skáld- sögur, sem gerast á öðrum hnöttum og í fjarlægri framtíð, stjórnmálarómana og raunsæisskáldsögur og margar bækur þjóðfræðilegs, sögulegs og vísindalegs efnis. Mesta frægð mun hann þó hafa hlotið fyrir mannkynssögu þá hina stór- merku, sem við hann er kennd, og þýdd hefir verið á íslenzku í styttri útgáfu. Af síðustu bókum hans mætti nefna „Tlie Shape o/ Tliings to Come“, framtíðarfrá- sagnir um eyðileggingu vestrænnar menn- ingar. Hún kom út árið 1933. Walter Shoenstedt, er ein af yngri skáldsagnahöfundum Þjóöverja. Hann yfirgaf land sitt af pólitískum ástæðum eftir aö Hitler-stjórn- in kom til valda og dvelur nú i Ameríku. írskir málshættir Sjáðu ekki allt sem þú sérð, og heyrðu ekki allt sem þú heyrir. Það vetrar snemma hjá letingj- unum. Guð opnar aðrar dyr, ef hann lokar einum. Segðu ekki allt það, sem þig langar til að segja, svo að þú heyrir ekki allt það, sem þig langar ekki til að heyra.

x

Dvöl

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.