Dvöl - 01.04.1944, Síða 27

Dvöl - 01.04.1944, Síða 27
D VÖL 105 En September litla prinsessa hljóp gegnum öll herbergi hallar- innar og söng eins og lævirki. En litli fuglinn flögraði kringum hana eins og næturgali, sem hann líka var. Þannig liðu nokkrir dagar, en þá fóru prinsessurnar átta að taka saman ráð sín. Þær fóru til Sept- ember, settust á hækjur sínar allt í kringum hana, eins og síamskar prinsessur eru vanar að sitja. •— Veslings September, sögðu þær. Það hryggði okkur mjög, að fallegi páfagaukurinn þinn skyldi deyja. Það hlýtur að vera hræðilegt fyrir þig að eiga ekki einn fallegan fugl, svo við höfum skotið saman og ætlum að kaupa handa þér falleg- an grænan og gulan páfagauk. — Ég þakka ykkur ekkert fyrir það, svaraði hún. (Þetta var ekki reglulega fallegt af henni, en síamskar prinsessur eru oft nokk- uð stuttar í spuna hver við aðra). — Ég á eftirlætisfugl, sem syngur fyrir mig yndislega söngva, og ég fæ ekki skilið, hvað í ósköpunum ég ætti að gera með grænan og gulan páfagauk. Janúar saug upp í nefið, síðan Febrúar og loks Marz. Allar prins- essurnar sugu upp í nefin, en á sérstakan, virðulegan hátt. Síðan spurði September þær: Hvers vegna sjúgið þið svona upp í nefið allar saman? Eruð þið allar búnar að fá kvef? — Nei ,góða mín, sögðu þær. Það er bara svo hlægilegt að heyra þig tala um fuglinn þ i n n, þar sem litli fuglinn flýgur út og inn eftir eigin geðþótta. — Þær skim- uðu um herbergið. -— — Getur þú sagt okkur hvar fugl- inn er núna? — Hann fór til þess að heimsækja tengdaföður sinn, sagði Septem- ber prinsessa. — Og hvað kemur þér til að álíta, að hann muni koma aftur? sögðu prinsessurnar. — Hann kemur alltaf aftur, sagöi September prinsessa. — Jæja, góða mín, sagði átt- unda prinsessan. Ef þú villt hafa okkar ráð, hættir þú ekki á slíkt. Ef hann kemur aftur, skaltu láta hann í búrið og geyma hann þar. Þetta er eina leiðin til þess að geta verið örugg og óhrædd um hann. — En mér finnst svo gaman að láta hann fljúga um herbergið, sagði September prinsessa. — Þú verður að hugsa fyrst og fremst um að vernda hann, sögðu hinar óheillavænlegu systur henn- ar. Þær stóðu upp, hristu höfuðin og fóru út úr herberginu, en Sep- tember sat eftir og var ekki búin að átta sig á þessu. — Henni fannst fuglinn vera svo lengi burtu og skildi hreint ekki í því, hvað hann gæti alltaf verið að gera. Eitthvað gat hafa komið fyrir hann. Fálkar og veiðimenn með snörur gátu orðið á leið hans og segir fátt af einum. Auk þess gæti hann gleymt

x

Dvöl

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.