Dvöl - 01.04.1944, Blaðsíða 38

Dvöl - 01.04.1944, Blaðsíða 38
116 &VÖI hélt ,að Grettir væri sofandi. En Grettir var var um sig og hljóp fram úr fletinu og varS létt um að ráða niðurlögum Gríms. Eftir þetta var Grettir mjög tregur að taka við skógarmönnum. Þó lét hann tilleiðast nokkru seinna að taka við manni, sem Þórir Rauð- skeggur hét. En hann hafði verið sendur til höfuðs Gretti, af Þóri í Garði. Rauðskeggur reyndist hinn bezti þjónn og segir sagan, að Grettir hafi þann tíma, er þessi skógar- maður var hjá honum, átt óvenju- lega góða daga. En Rauðskeggur fékk aldrei færi á Gretti, því hann var jafnan var um sig. En um vor, þegar Rauðskeggur hafði verið tvo vetur með Gretti og orðinn leiður á heiðalífinu, gerði veður mikið. Braut þá Rauðskeggur bátinn um nótt, en netin voru úti í vatninu. Synti þá Grettir eftir netunum, segir sagan, en þegar að landi kom, ætlaði Rauðskeggur að vega Gretti, en þá kafaði Grettir og kom á öðr- um stað upp úr vatninu og að baki Rauðskeggs, þreif hann upp fyrir höfuð sér og hraut þá saxið úr hendi Rauðskeggs, en Grettir greip það og hjó hann banahögg með því. Eftir þetta viidi Grettir aldrei við skógarmönnum taka, en þó mátti hann varla einn saman vera. Þegar Þórir í Garði frétti afdrif flugumanns síns, fór hann sjálfur norður af Alþingi með 80 menn og hugði nú að ráða niðurlögum Grettis. Segir sagan, að Grettir hafi þá hlaupið í hamraskarð eitt, er hann varð var Þóris. Þar var barizt lengi dags, en loks varð Þórir þó frá að hverfa, eftir mikið mann- fall. Þá var það, að Hallmundur varði Gretti svo, að enginn fékk sótt aftan frá. En sárir eftir bardagann, héldu þeir í helli Hallmundar suð- ur undir Balljökli. Þar tók gild og sköruleg dóttir Hallmundar þeim tveim höndum og græddi þá báða. Allt er þrungið hér á heiðunum af sögum og sögnum um liðna at- burði. í Hellismanna sögu segir m. a.: „Örn hét austmaður, er út kom í Hvít- árósi. Réðst hann til Þorvarðsstaða (Þor- valdsstaðir heitir einn efsti bærinn í Hvít- ársíðu nú) ok staðfestist þar. Hann var mikill ok sterkur ok hinn mesti veiði- maður. Höfðu þeir selstöð niður við fiski- vötn á heiðum ok var Örn jafnan at seli, þar er síðan heitir Arnarvatn og heiðin Arnarvatnsheiði". Bróðir Arnar hét Eiríkur, sem Eiríksjökull er við kenndur. Hann var afburðamaður um afl og vöxt og skáld gott, segir sagan. Borg- firðingar börðust við Hellismenn í Vopnalág og féllu Hellismenn margir, en aðrir flýðu og voru flest- ir drepnir á flóttanum, Er sagt, að Þormóður strendill hafi komizt lengst, eða út í sker það fyrir Mýr- um, sem síðan er við hann kennt. Hljóp hann þar fyrir gnýpu eina og týndist,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Dvöl

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.