Dvöl - 01.04.1944, Blaðsíða 60

Dvöl - 01.04.1944, Blaðsíða 60
138 D VÖL sinnið. Honum varð lítið eitt léttara um andardráttinn, en hann lyfti ekki höfðinu vitundarögn. Laugardagurinn leið hægt. Seint um kvöldið fór Jói heim í bæ og sótti rúmfötin sín og bjó um sig í heyinu. Hann bað ekki um leyfi. Hann sá á því hvernig móðir hans leit á hann, að hún mundi leyfa honum að gera næstum því hvað sem væri. Um nóttina lét hann logandi lukt hanga á krók yfir lokubásnum. Billi hafði sagt honum að nudda fætur hestsins með stuttu millibili. Klukkan níu tók að hvessa, og vindurinn gnauðaði á húsinu. Og þrátt fyrir áhyggjurnar varð Jói syfjaður. Hann skreið undir teppið og sofnaði brátt, en stunur hestsins færðust inn í draumheim hans. Og í svefninum heyrði hann hið hása soghljóð, og það varð hærra og hærra unz það vakti hann. Vindurinn hvein um húsið. Hann spratt upp og leit yfir básaröðina. Hurðin hafði fokið upp, og hesturinn var horfinn. Jói þreif luktina og hljóp út í storminn, og hann glytti í Gabilan, sem skjögraði burt frá húsinu út í myrkrið, höfuðið hékk niður, fæt- urnir hreyfðust hægt og ósjálfrátt. Jói hljóp til hans og þreif í ennis- toppinn, og hann lét teyma sig mótþróalaust aftur inn á básinn. Stun- urnar voru hærri og það snörlaði hryllilega í nösunum. Jói söfnaði ekki blund það sem eftir lifði nætur. Hvinurinn í andardrætti hests- ins varð hærri og hærri. Hann varð feginn þegar Billi Búkk kom um morguninn. Billi horfði lengi á hestinn eins og hann hefði aldrei séð hann fyrr. Hann þreifaði um eyrun og síðurnar. „Jói,“ sagði hann. „Ég þarf að gera nokkuð, sem þig langar ekki til að sjá. Farðu heim í bæ um stund.“ Jói greip nístingstaki um handlegg hans. „Ha — ætlarðu að skjóta hann?“ Billi klappaði honum á höndina. „Nei. Ég ætla að gera smágat á barkann á honum, svo hann geti andað. Nasirnar eru alveg stoppaðar. Þegar hann frískast, þá setjum við litla málmpípu í gatið handa honum að anda í gegnum.“ Jói hefði ekki getað farið burt þó hann hefði viljað. Það var hroða- legt að sjá rauða húðina skorna sundur, en þó miklu ægilegra að vita hana skorna og sjá ekki til. „Ég ætla að vera hér,“ sagði hann beisk- lega. „Ertu viss um að þú verðir að gera það?“ „Já. Ég er viss um það. Ef þú verður kyrr geturðu haldið á honum höfðinu. Það er að segja, ef þér fellur það ekki illa.“ Hnífurinn góði var nú aftur tekinn fram og dreginn aftur af sömu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Dvöl

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.