Dvöl - 01.04.1944, Side 64

Dvöl - 01.04.1944, Side 64
142 DVÖL Ævisaga Bjarna Palssonar landlækn- is, eftir Svein Pálsson lækni, er ný- lega komin út öðru sinni á vegum Árna Bjarnarsonar, bókaútgefanda á Akureyri. Eflaust má um það deila, hvort ekki hafi verið meira aðkallandi endurprent- un einhvers annars rits en þessa. Kemur manni skjótt í hug ævisaga Jóns Eiríks- sonar eftir sama höfund, stórum viða- meiri bók og fjölfróðari. En báðir eru þeir læknarnir, Sveinn og Bjarni, slíkar höfuðkempur, að fyllilega eiga þeir skilið þá hlýju ræktarsemi, sem útgáfa bókar þessarar ber vitni um. Verður hún að teljast snoturt minnismerki og vel til fallið í alla staði. Útgáfa ævisögunnar er hin snyrtileg- asta. Hefur Sigurður Pálsson, mennta- skólakenníiri annazt hana af natni og smekkvísi. En það, sem gefur útgáfu þess- ari stóraukið gildi, er formáli Sigurðar skólameistara Guðmundssonar. Sigurður skólameistari er einn þeirra fáu manna, sem naumast láta lítt hugsuð orð úr penna fljóta. Þótt maður kunni að vera honum fyllilega ósammála um suma hluti, er alltaf verulegur gróði að lesa ritgerðir hans. Oft minnir rithátt- urinn á mishæðótt landslag og fjölbreyti- legt. Þótt maður skrönglist um stund yfir urðir tyrfins máls og kvíði fótbroti í hverju spori, liggur leiðin von bráðar upp á einhvern sjónarhólinn, þar sem við blas- ir ný og óvænt útsýn. í formála þeim, sem Ævisögu Bjarna landlæknis fylgir, er dregin upp ákaflega glögg og lifandi mynd af Sveini Pálssyni, þeim hinum á- gæta manni. Skal hér tilfærður stuttur kafli, þar sem Sigurður segir í ályktarorð- um: „í skapnaði Sveins Pálssonar sést eng- in glufa né gloppa, hvorki í líkamlegum efnum né sálrænum, andlegum né sið- ferðilgum. Líkamsþrek hans er aðdáan- legt. Og hinn mikli „höfuðsmiður" mundi var orðiS að rauðri klessu. Hann var enn að berja dauðan fuglinn, þegar Billi Búkk tók hann í fangið og þrýsti honum að sér til að sefa hann. Karl Tiflín þurkaði blóðið framan úr drengnum með rauðum vasa- klút. Jói var nú orðinn máttlaus og rór. Paðir hans ýtti við fuglinum með tánni. „Jói,“ sagði harin, „ekki drap hann þó hestinn þinn. Skil- urðu það ekki,“ „Ég veit það,“ sagði Jói þreytulega. En nú varð Billi Búkk reiður. Hann hafði tekið Jóa í fangið, og var lagður af stað með hann heim á leið, en sneri sér snöggt að Karli Tiflín og sagði í ofsabræði: „Eins og hann viti það ekki. Jesús minn! Geturðu ekki skilið hvernig honum líður.“ (Framh.)

x

Dvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.