Hlín - 01.01.1944, Page 17
Hlín
15
dóttir Össurar Magnússonar og konu hans Maríu Salóme
Jónsdóttur. Foreldrar Salóme voru Elín Markúsdóttir,
prests Eyjólfssonar frá Söndum í Dýrafirði (d. 1830) og
Jón Einarsson á Hvítanesi. Hann var þriðji maður frá
Ólafi lögsögumanni á Eyri. — Foreldrar Össurar voru
Magnús Guðmundsson, Bárðarsonar hreppstjóra í Arn-
ardal, (er ætt hans kunn og vel rnetin á Vestfjörðum), og
Bergljót Jónsdóttir, Árnasonar fálkafangara Halldórsson-
ar í Árnesi (d. 1734).
Af systkinum átti María aðeins tvo hræður, Kristján og
Magnús, er báðir dóu barnlausir.
María var há og fallega vaxin, mikil fríðleikskona og
tignarleg í allri framgöngu og látbragði. Hún var skap-
mikil, nokkuð ör í lund, en hreinskilin, hver sem í hlut
átti. Hún var gáfuð kona og átti hægt með að koma fyrir
sig orði. Hún mátti heita barn að aldri, aðeins 17 ára, er
hún tók við heimilisstjórn hjá bónda sínum, og þurfti
nokkuð til, því að Torfi Halldórsson var einn hinn tram-
gjarnasti og atorkuvænlegasti maður á sinni tíð.
Þeim hjónum varð 11 barna auðið, en auk þess tóku
þau þrjú fósturbörn og höfðu oft hörn annara á heimili
sínu um lengri og skemri tíma. Þrjú börn þeirra dóu ung,
öll hin fengu hið ágætasta uppeldi, fóru utan á unga
aldri, stunduðu nám við ýmsa skóla erlendis og fengu
góða mentun. — Þektastir þeirra systkina urðu þeir bræð-
urnir, Kristján og Páll. — Páll Torfason var þeirra elstur,
mikill maður á velli, gáfaður og glæsilegur og fór víða
orð af honum. En öll voru þau systkini hin mannvæn-
legustu.
Torfi Halldórsson hafði allmikið bú, útgerð og versl-
un, en auk Jress stundum sjómannaskóla heima hjá sér, er
því auðskilið, að kvenskörung þurfti til Jress að standa
vel í húsmóðurstöðunni á Jressu stóra heimili og gera það
jafn rómað sem Jrað varð hvarvetna. Þar var jafnan margt
í heimili, stundum uppundir 30 manns, en auk þess var