Búnaðarrit - 01.01.1989, Side 12
Heiðursfélagar
Heiðursfélagar Búnaðarfélags íslands eru:
Ásgeir Bjarnason í Ásgarði,
Einar Ólafsson frá Lækjarhvammi,
Elín Guðmundsdóttir frá Sneis,
Guðmundur Jónsson, fyrrverandi skólastjóri,
Gunnar Árnason, fyrrverandi skrifstofustjóri,
Gunnar Guðbjartsson frá Hjarðarfelli,
Helgi Símonarson á Þverá,
Hjalti Gestsson frá Hæli,
Sigurður J. Líndal á Lækjamóti,
Teitur Björnsson á Brún.
Sigurjón Sigurðsson í Raftholti, heiðursfélagi Búnaðarfélags íslands,
lést á árinu.
Aðalskrifstofa féiagsins
Skrifstofan starfaði með sama hætti og áður að afgreiðslum mála, bókhaldi
og greiðslum fyrir alla þætti í starfsemi félagsins og því sem því er falin
umsjón með, svo og fyrir Búnaðarþing.
Helstu viðfangsefni á árinu
Störf stjórnar og búnaðarmálastjóra á árinu einkenndust af þeirri fjár-
hagskreppu, sem félagið var í vegna minnkandi fjárveitinga á undanfarandi
árum og þess sérstaka niðurskurðar, sem það varð að þola við afgreiðslu
fjárlaga fyrir árið 1988 og getið er í síðustu starfsskýrslu. Strax að loknu
Búnaðarþingi hóf stjórnin að vinna að því að fá úr þeim málum bætt.
Hún gekk á fund forsætisráðherra hinn 1. mars og síðar sama dag átti hún
ítarlegar viðræður við landbúnaðarráðherra. Byrjað var á því að kynna
ráðherrunum ályktun Búnaðarþings „um fastcin tekjustofn Búnaðarfélags
íslands og búnaðarsambandanna“ (mál nr. 34, þingskjal 79), og ræddi út frá
henni um nefndan tekjustofn og jafnframt um fjárhagsstöðu B.í. og
búnaðarsambandanna auk fleiri mála frá Búnaðarþingi. Ráðherrarnir
lögðu hvor fyrir sig til, að stjórnarflokkarnir tilnefndu hver einn mann í
nefnd til að fjalla um þessi mál og gera tillögur til ríkisstjórnarinnar. Lögð
var áhersla á það, að jafnframt því, sem tekjustofn yrði markaður, sem
gengi til þess að standa straum af félagslegum þætti við starfsemi B.í. og
búnaðarsambandanna eins og hann yrði metinn, viðurkenndi ríkisvaldið
skyldu sína til að standa straum af öðrum þáttum í starfsemi Búnaðarfélags-
ins. Farið var fram á það, að um þessa skiptingu yrði gert sérstakt
samkomulag á milli landbúnaðarráðherra og stjórnar B.í.
10