Búnaðarrit - 01.01.1989, Síða 201
landgræðslu að því, er tekur til ástands og eftirlits gróðurs svo og hvers
konar landnýting, sett undir umhverfismálaráðuneyti og þannig skilin
algjörlega frá landbúnaðarráðuneytinu. Þingið mótmælir harðlega þessum
hugmyndum og telur augljóst, að málefni gróðurverndar og landgræðslu
séu bezt komin hjá einni öflugri fagstofnun undir yfirstjórn landbúnaðar-
ráðuneytis. Því er sú skoðun Búnaðarþings, að hinir einstöku þættir í
stjórnun umhverfismála séu hvergi betur komnir en í umsjá fagráðuneyta,
sérstaklega áréttuð.
Þá lýsir þingið undrun sinni á staðhæfingum þeim, er fram koma í
athugasemdum hvað varðar 6. og 7. gr. frumvarpsins. Slík ummæli og
aðdróttanir, er þar koma fram í garð bændastéttarinnar og stofnana hennar,
eru í fyllsta máta ómakleg og að engu hafandi.
Umhverfismál verða naumast leyst, svo að vel fari, á ráðuneytisstigi,
heldur miklu fremur á stofnanastigi og í samvinnu við hina eiginlegu
notendur hinna ýmsu náttúrugæða.
í stað þess að stofna til nýs ráðuneytis um umhverfismál væri eðlilegra, að
fagráðuneyti hefði á að skipa sérstökum umhverfismálafulltrúum til að
sinna þeim málaflokki og hafa samráð þar um sín á milli.
Það er álit Búnaðarþings, að þetta mál varði bændastéttina í heild mjög
miklu og felur því stjórn Búnaðarfélags íslands að senda frumvarpið ásamt
afgreiðslu Búnaðarþings heim í búnaðarsamböndin til umfjöllunar.
Mál nr. 3
Erindi allsherjarnefndar um frumvarp til laga um vörzluskyldu búfjár á
Reykjanesskaga - 466. mál 111. löggjafarþings.
Málið afgreitt með eftirfarandi ályktun, sem samþykkt var með 21 sam-
hljóða atkvæði:
Búnaðarþing leggur til, að frumvarp til laga um vörzluskyldu búfjár á
Reykjanesskaga, 466. mál 111. löggjafarþings, verði ekki lögfest.
Þingið bendir á, að starfandi er nefnd, skipuð af landbúnaðarráðherra,
sem vinnur að lausn þessa máls, og í greinargerð með frumvarpinu kemur
meðal annarsfram, að góðar vonirstandi til, að fullt samkomulag geti tekizt
um tilhögun búfjárhalds á svæðinu og gerð sérstakra beitarhólfa innan hins
friðaða svæðis.
Því telur Búnaðarþing ekki þörf á sérstakri lagasetningu vegna þessa
máls.
Mál nr. 4
Erindi jarðrœktarnefndar um frumvarp til laga um breytingu á jarðræktar-
lögum - 463. mál 111. löggjafarþings.
Málið afgreitt með eftirfarandi ályktun, sem samþykkt var með 21 sam-
hljóða atkvæði:
199