Búnaðarrit - 01.01.1989, Síða 94
FREYR
I. Skýrsla Matthíasar Eggertssonar
Rekstur Freys er í megindráttum í föstum
skorðum. Á árinu 1988 komu út 24 tölublöð,
40 síður að stærð að jafnaði. Undantekning
var 6. tölublað, sem var 48 síður, en þar voru
birtar ályktanir Búnaðarþings 1988, og 19.
tölublað, sem birti tíðindi frá aðalfundi Stétt-
arsambands bænda, en það var 88 síður.
Með 13. tölublaði var dreift fylgiriti,
„Leiðbeining við þjóðvegi“. Það er í A-5
broti, 36 síður. Að uppistöðu er það bækling-
ur, sem Vegagerð ríkisins og Náttúruvernd-
arráð gáfu út, sem ber heitið „Leiðbeiningar-
merki við þjóðvegi", en að auki er efni frá
Stéttarsambandi bænda.
Á árinu var gerð könnun á lestri á Frey meðal áskrifenda blaðsins. Spurt
var annars vegar um skoðun áskrifenda á einstökum efnis- og útlitsþáttum
blaðsins og hins vegar um hversu vel þeir læsu eipstaka efnisflokka. Að auki
var spurt um hvernig búrekstur svarendur stunduðu og fleira.
Könnunin var send 400 áskrifendum blaðsins og svöruðu rúmlega 20%,
en í hverju svari voru um 150 atriði, sem menn gátu tekið afstöðu til. 1
stórum dráttum vilja svarendur hafa blaðið eins og það er, en fram kom
áhugi á meira efni í ýmsum efnisflokkum, m.a. um ný atvinnutækifæri,
bútækni, öryggismál, mengun, félagsleg réttindi, rekstraráætlanir, hagnýt-
ar leiðbeiningar og tilraunaniðurstöður. Þá var beðið um meira efni frá
vinnslufyrirtækjum landbúnaðarins og héraðsráðunautum og óskað var
eftir fleiri lesendabréfum og meiri skoðanaskiptum. Að lokum má nefna að
viðtöl eru hvað vinsælasta efni blaðsins. Nánar verður fjallað um lesenda-
könnunina í Frey, en þegar er farið að nýta hana fyrir blaðið.
Um 80 aðilar erlendis fá Frey. Þar á meðal eru mörg bókasö.fn og
landbúnaðarstofnanir. Þá er blaðið sent í ritskiptum fyrir nokkur erlend
tímarit. Nafnalisti yfir erlendar áskriftir vill staðna í áranna rás og því var
öllum erlendum áskrifendum Freys sent á árinu bréf og beðið um staðfest-
ingu á að þeir óskuðu eftir að fá blaðið áfram, jafnframt því sem beðið var
um leiðréttingu á utanáskrift ef með þyrfti.
Svör bárust greiðlega og kom þá í ljós að margar útanáskriftir voru
ófullkomnar.
92