Búnaðarrit - 01.01.1989, Page 200
kynbótaframfarir í bústofni landsmanna hafi orðið verulegar á undan-
förnum árum og áratugum og komi landsmönnum öllum til góðs. Og að
nokkru leyti hafa þessir fjármunir verkað sem niðurgreiðsla á kostnaði,
sem annars gengi beint inn í verðlag.
Hér er þó nefnd upphæð, sem felur í sér verulega lækkun frá þeim
upphæðum, sem nú ættu að greiðast, ef það væri gert, og mun auk þess
dreifast í fleiri staði. En Búnaðarþing telur það mjög mikilvægt, að hér
verði gert fastara undir fæti en nú er í þessari frumvarpsgrein.
8. Þá er lagt til, að upp í frumvarpið verði teknar 13., 19. og 31. gr.
gildandi búfjárræktarlaga. Þær eru í eðli sínu ræktunarverndarákvæði.
Breytingartillaga Gunnars Sæmundssonar.
11. gr., 1. málsgrein orðist svo:
Vegna sæðinga mjólkurkúa er búnaðarsamböndum eða öðrum, er reka
sæðingastöðvar, heimilt að innheimta hjá mjólkurframleiðendum gjald af
allri innveginni mjóik í mjólkurbú. Gjaldið má að hámarki nema 1% af
grundvallarverði mjólkur, eins og það er á hverjum tíma, og ákvarðar
aðalfundur sambands upphæð gjaldsins hverju sinni.
11. gr. að öðru leyti óbreytt.
Mál nr. 2
Frumvarp til laga um umhverfismál - 417. mál 111. löggjafarþings.
Málið afgreitt með eftirfarandi ályktun, sem samþykkt var með 19 sam-
hljóða atkvæðum:
Búnaðarþing mælir harðlega gegn lögfestingu frumvarpsins og lýsir
undrun sinni á þeim málatilbúnaði, sem þar er hafður uppi.
Þingið bendir á og undirstrikar samþykktir sínar frá síðasta reglulega
Búnaðarþingi á þingskjali 62 og þingskjali 78 og áréttar þar sérstaklega
tölulið 2 og 3 á þingskjali 62.
Jafnframt er harmað, að við samningu þessa frumvarps skuli hvergi
komið til móts við þau sjónarmið, sem þar koma glögglega fram og afgreidd
voru einróma með fyrrgreindum samþykktum.
Nýtt ráðuneyti um umhverfismál stóreykur miðstýringu í þjóðfélaginu
auk þess sem það mun hiaða á sig starfsfólki, ef marka má reynslu annarra
þjóða.
Þá eru umhverfisvandamál hérlendis í mörgum tilfellum önnur en þau,
sem nágrannalönd okkar eiga við að stríða og því hreint ekki sjálfgefið, að
skipulag þeirra í þessum málum henti hér.
Mikils ósamrœmis gætir í frumvarpinu að því, er snýr að hinum einstöku
atvinnugreinum. Til dæmis á öll meðferð á lífríki sjávar að vera áfram undir
sínu fagráðuneyti - sjávarútvegsráðuneytinu. Hins vegar eru lög um
198