Búnaðarrit - 01.01.1989, Qupperneq 154
Að hluta til er hugsanlegt að ná þessu markmiði með samvinnu milli
leiðbeiningastöðva, til dæmis ef starfandi eru landsráðunautar við
einhverjar þeirra.
4. Sérstaklega verði athugað, hvaða leiðbeiningaform hentar bezt í nýleg-
um og nýjum búgreinum, meðal annars hvernig koma megi við nánu
samstarfi manna á mismunandi fagsviðum, þótt viðkomandi stöðugildi
séu ekki öll á einum og sama stað.
í því sambandi má benda á nálægð Hvanneyrar og Selfoss við Reykjavík
og greiðar samgöngur við Akureyri.
5. Búseta héraðsráðunauta verði með líkum hætti og nú er, en tengsl þeirra
við miðstöðvarnar tryggð meðal annars með eftirfarandi:
a) með fundum, þar sem ákveðin yrðu helztu áherziuatriði í leiðbein-
ingaþjónustu hverju sinni og vinnutilhögun samræmd,
b) með námskeiðum ef henta þykir,
c) með heimsóknum sérfræðinga frá miðstöðvunum til einstakra ráðu-
nauta, skipulögðum viðtalstímum og heimsóknum á einstök býli til
lausnar ákveðnum verkefnum eða vandamálum.
6. Ýmiss konar þjónustu- og stjórnunarstörf fyrir opinberar stofnanir og
aðra aðila verði í aðalatriðum unnin af sömu mönnum og annast
leiðbeiningaþjónustuna, enda komi eðlileg greiðsla á réttum tíma fyrir
þá vinnu.
Nefndin athugi það mál sérstaklega í samráði við stjórn Búnaðarfélags
íslands við hlutaðeigandi stofnanir.
II.
Tengsl rannsókna, fræðslu og leiðbeininga verði aukin og treyst með
ráðningu manna í hlutastörf hjá fleiri stofnunum, sem vinna að einhverjum
þeirra málaflokka, sem tilgreindir eru.
III.
Fjármögnun leiðbeiningaþjónustunnar verði skoðuð nánar og skilgreind
á grundvelli viðaukatöflu 4, bls. 110, í skýrslu nefndarinnar, þar sem settar
eru fram hugmyndir um, hvernig verkefnin skulu greind, hvort þau skuli
unnin í héraði og/eða á landsvísu, og hverjir beri kostnað af þeim.
Jafnhliða verði skilgreint, hvernig verkefni og stöðugildi þróist milli
einstakra stofnana, sem að þessum málum vinna.
IV.
Nefndin vinni að mótun og framgangi þessara mála í samvinnu og
samráði við eftirtalda aðila:
Stjórn Búnaðarfélags íslands, landbúnaðarráðuneytið og þingmanna-
nefnd þá, er vinnur að athugun á fjárveitingum til Búnaðarfélags íslands og
fleiru, er starfsemi þess varðar.
152