Búnaðarrit - 01.01.1989, Qupperneq 122
BÚNAÐARÞING 1989
Samkvæmt kvaðningu stjórnar Búnaðarfélags íslands, dags. 19. desem-
ber 1988, kom Búnaðarþing saman til fundar í Bændahöllinni í Reykjavík,
mánudaginn 27. febrúar 1989 kl. 10:00.
Viðstaddir þingsetningu í Súlnasal voru auk þingfulltrúa Steingrímur J.
Sigfússon, landbúnaðarráðherra, Guðrún Helgadóttir, forseti sameinaðs
Alþingis, Stefanía María Pétursdóttir, formaður Kvenfélagasambands
íslands, nokkrir alþingismenn og fjöldi annarra gesta.
Forseti þingsins, Hjörtur E. Þórarinsson, formaður Búnaðarfélags
íslands, bauð velkominn landbúnaðarráðherra, forseta sameinaðs Alþing-
is, aðra gesti svo og búnaðarþingsfulltrúa.
Þá minntist forseti tveggja heiðursfélaga Búnaðarfélags íslands, sem
Iátizt höfðu síðan síðasta Búnaðarþing var haldið. Annar þeirra, Sigurjón
Sigurðsson í Raftholti í Holtum, hafði einnig átt sæti á Búnaðarþingi um
langt skeið.
Um hann sagði forseti:
„Sigurjón var fæddur í Bjálmholti í sömu sveit, 4. marz 1895, sonur
hjónanna þar, Sigurðar Sigurðarsonar og Borghildar Þórðardóttur. Þar ólst
hann upp við venjuleg kjör þess tíma í sveitum, litla skólagöngu, en mikla
vinnu og nægjusemi í lifnaðarháttum. Auk barnaskólans stundaði hann
nám við Hvítárbakkaskólann í Borgarfirði, þegar hann var um tvítugt, og
bjó að því alla ævi að eigin sögn.
Hann stundaði sjómennsku á togurum og smærri bátum í 13 vertíðir, þótt
hann ynni á sumrum heima á búi foreldra sinna. Á uppvaxtarárum
Sigurjóns stóð ungmennafélagshreyfingin með hvað mestum blóma víða
um land, oggekk Sigurjón til liðs við hana heils hugar, bæði í heimasveit og í
héraðssambandinu. Á þeim vettvangi þjálfaðist hann prýðilega í félagsstarfi
og ræðumennsku og naut þess æ síðan.
Eftir að Sigurjón staðfesti ráð sitt, 1922, bjó hann í nokkur ár sem
leiguliði í Kálfholti í Ásahreppi, en 1928 keypti hann Raftholt í Hoitum og
bjó þar til dauðadags. Hafði þó látið búið í hendur sona sinna miklu fyrr eða
1966.
Sigurjón bóndi í Raftholti gerðist brátt mjög virkur í félagsmálum stéttar
sinnar, valdist þar til mikils trúnaðar og stóð í þeim störfum af miklum
áhuga og dugnaði í 30 ár. Hér skal þess aðeins getið, að hann var fulltrúi á
aðalfundum Stéttarsambands bænda í 12 ár, í stjórn þess í 8 ár, í stjórn
120