Búnaðarrit - 01.01.1989, Side 51
Þá fæddist 171 lambeftir lOOærog 158komu til nytja. Afurðireftirtvílembu
voru 30,0 kg, eftir einlembu 17,3 kg, eftir á með lambi 25,9 kg og 24,3 kg
eftir hverja á. Uppgjöri skýrslnanna lauk ekki endanlega fyrr en á haust-
mánuðum 1988 vegna þess hve sumar fjárbækurnar voru sendar seint til
uppgjörs. Telja verður að þátttaka í skýrsluhaldinu haldi sér vel miðað við
hina miklu fækkun fjár, sem orðin er.
Kynbótanefnd sauðfjárrœktar. í nefndinni áttu sæti á árinu, auk undirrit-
aðs, Hjalti Gestsson, Guðmundur Sigurðsson, Ólafur G. Vagnsson og Páll
Sigbjörnsson. Ólafur R. Dýrmundsson er ritari nefndarinnar og auk þess
hefur Jón Viðar Jónmundsson tekið þátt í störfum hennar. Kynbótanefndin
kom tvisvar saman á árinu, í Reykjavík þann 20. apríl og á Hesti 21.
september. Aðalviðfangsefni nefndarinnar var að venju val hrúta fyrir
sæðingarstöðvarnar og skipting þeirra á milli stöðva. Þá eru á þessum
vettvangi rædd helstu áhersluatriði í ræktunarstarfinu, og m.a. var sam-
þykkt að reyna að taka alla nýja hrúta í afkvæmaprófun með tilliti til
kjötgæða fyrsta vetur, sem þeir voru á stöð, nema slík prófun hefði farið
fram áður, sem æskilegra er.
Fundir og ferðalög. Haustið 1988 var ég alls 22 daga á ferðalögum vegna
sauðfjársýninga og afkvæmarannsókna, en í apríl og maí ferðaðist ég 4 daga
um Suðurland og nokkra staði á Vestur- og Norðvesturlandi vegna kaupa á
hrútum fyrir sæðingarstöðvarnar. Auk þessara ferða sótti ég fundi hjá
bændum sem hér segir.
18. mars
11. apríl
26.-27. ágúst
16.-18. nóv.
23. nóvember
25. nóvember
1. desember
Fundur í Skógum hjá fjórum fjárræktarfélögum
undir Eyjafjöllum og í Mýrdal.
Aðalfundur Félags sauðfjárbænda í Suður-Þing-
eyjarsýslu.
Aðalfundur Landssamtaka sauðfjárbænda á
Flúðum.
Fundaferð um Norðurland og voru haldnir
fundir á Laugabakka í Miðfirði, Blönduósi,
Sauðárkróki, Hrafnagili í Eyjafirði, Breiðumýri
í Reykjadal og á Kópaskeri.
Fundur með formönnum fjárræktarfélaga á
Suðurlandi, haldinn í Gaulverjabæ.
Bændafundur í Búðardal.
Aðalfundur Fjárræktarfélags Hrunamanna.
Á ofangreindum fundum hélt ég erindi um kynbætur, fóðrun og meðferð
fjár svo og um kjötmat. Helsti tilgangurinn með haustfundunum var að
hvetja bændur til þátttöku í sauðfjársæðingum og halda vöku sinni í
kynbótastarfinu. Kynnti ég þar sérstaklega nýlegar niðurstöður úr af-
kvæmarannsóknum á Hesti og Suðurlandi, sem sýna glögglega hvaða
4
49