Búnaðarrit - 01.01.1989, Page 165
Búnaðarþing gerir þá kröfu til stjórnvalda, að ríkissjóður standi skil á
lögbundnum greiðslum samkvæmt núgildandi jarðræktar- og búfjárræktar-
lögum til bænda, búfjárræktarfélaga og búnaðarsambanda.
Þá gerir þingið kröfu um fullar verðbætur á ógreidd jarðræktarframlög
vegna framkvæmda 1987 svo og annarra vanskila, er kunna að veröa.
Þingið felur stjórn Búnaðarfélags Islands að knýja á við landbúnaðarráð-
herra um, að fengin verði fjárveiting á þessu ári til að staðið verði að fullu
við áðurnefnd lög.
GREINARGERÐ:
Vanefndir á greiðslu jarðræktarframlaga veldur bændum fjárhagsvand-
ræðum, þar eðframlögin eru ákveðinn liður ífjármögnun, sem bændurgera
ráð fyrir, þegar í framkvæmdir er ráðizt.
Það er löngu viðurkennt, að tæpast finnst þjóðhagslega arðbærari
fjárfesting en í búfjárkynbótum. Framfarir í búfjárrækt koma því öllum til
góða, en undirstaða þeirra er öflugt kynbótastarf, sem byggist meðal annars
á rekstri kynbóta- og sæðingarstöðva ásamt með góðu kynbótabókhaldi.
Það er staðreynd, að kostnaður við kynbótabókhald hér er aðeins
30-40% af kostnaði við sambærilegt bókhald í nágrannalöndunum, því að
hér vinna bændur sjálfir alla grunnskráningu, sem víðast erlendis er
framkvæmd af launuðu fólki. Framlög til búfjárræktar standa að stórum
hluta undir kynbótastarfinu. Ef greiðslur framlaganna bregðast, mun
kynbótastarfið leggjast algjörlega niður með óbætanlegum skaða fyrir
búfjárrækt í landinu, nema annað komi til.
Mál nr. 14
Erindi Búnaðarsambands Austurlands um auknar fjárveitingar til rann-
sókna á innlendri fóðurframleiðslu og nýtingu fóðurefna.
Málið afgreitt með eftirfarandi ályktun, sem samþykkt var með 22 sam-
hljóða atkvæðum:
Búnaðarþing skorar á landbúnaðarráðherra, að hann beiti sér fyrir
auknum fjárveitingum til tilraunastöðva landbúnaðarins.
Nú síðustu árin hafa fjárveitingar til tilraunastöðva farið stöðugt lækk-
andi að raungildi. Er starfsemi þeirra nú svo lömuð, að þær geta hvorki
gegnt því hlutverki að rannsaka, hvernig innlend fóðurefni nýtast sem bezt,
né unnið að annarri tilraunastarfsemi, sem nauðsynlegt er að vinna að.
Því leggur Búnaðarþing mjög þunga áherzlu á, að tilraunastöðvunum
verði gert kleift að starfa af fullum krafti að landbúnaðarrannsóknum.
163