Búnaðarrit - 01.01.1989, Page 202
Búnaðarþing, haldið 18. apríl 1989, ályktar eftirfarandi um frumvarp til
breytinga á jarðræktarlögum nr. 56 30. marz 1987:
Búnaðarþing 1989 féllst á breytingar á verklagi við undirbúning og
framkvæmd á greiðslu jarðræktarframlaga og einnig á að takmarka framlög
til ákveðinna framkvæmda vegna breyttra aðstæðna í landbúnaði, eins og
fram kemur í ályktun þess.
Að öðru leyti er ítrekað það álit, sem fram kom í greinargerð með ályktun
þingsins og hljóðar þannig:
„Jarðræktarlögin voru sett 1987 og hafa raunverulega ekki komið til
framkvæmda enn. í ljósi þess, að framkvæmdir í sveitum hafa dregizt
mjög saman og fjárþörf vegna jarðræktarlaga hefur minnkað um rúman
helming s.l. fimm ár, telur Búnaðarþing óraunhæft að hverfa frá þeirri
stefnu, sem Alþingi markaði í lögunum frá 1987.
í 2. gr. frumvarpsins eru lagðar til breytingar á lögunum, sem Búnaðar-
þing getur ekki fallizt á, og mælir þingið gegn því, að það verði lögfest í
þeirri mynd, sem það er lagt fram.“
Mál nr. 5
Erindi jarðrœktarnefndar umfrumvarp til laga um skógvernd ogskógrœkt-
412. mál 111. löggjafarþings.
Málið afgreitt með eftirfarandi ályktun, sem samþykkt var með 21 sam-
hljóða atkvæði:
Á Búnaðarþingi þann 18. apríl 1989 var rætt um framkomið frumvarp til
laga um skógvernd og skógrækt, sem lagt er fram á Alþingi. Búnaðarþing
1989 hafði drög að þessu frumvarpi til umsagnar og gerði við það athuga-
semdir, sem sumar hverjar hafa verið teknar til greina, en aðrar ekki.
Sérstaklega varar þingið við því, að veigamiklar áherzlur í ályktun
Búnaðarþings, sem varða forystu bænda í skógrækt, forkaupsrétt og
eignarhald á skógræktarlöndum, hafa ekki verið teknar til greina. Þingið
leggur áherzlu á aðild Búnaðarfélags íslands að stjórn Skógræktar ríkisins.
Mál nr. 6
Erindi fjárhagsnefndar um frumvarp til laga um Hagstofnun landbúnaðar-
ins-413. mállll. löggjafarþings.
Málið afgreitt með eftirfarandi ályktun, sem samþykkt var með 21 sam-
hljóða atkvæði:
Á Búnaðarþingi 18. apríl 1989 var rætt um fram komið frumvarp til laga
um Hagstofnun landbúnaðarins, sem lagt er fram á Alþingi. Búnaðarþing
1989 hafði drög að þessu frumvarpi til umsagnar og gerði við það athuga-
semdir, sem ekki hafa verið teknar til greina.
200