Búnaðarrit - 01.01.1989, Blaðsíða 14
leiðbeiningaþjónustunnar væru í heildarendurskoðun og því væri slíkt
samkomulag ótímabært. Ráðherra vitnaði til þess, að með því að hann hefði
mælt með fjárveitingabeiðni félagsins vegna fjárlaga 1989 sem næst
óbreyttri og auk þess farið fram á að félaginu yrði bættur halli af starfsemi
undanfarandi ára að hálfu á því ári, væri hann í raun búinn að veita félaginu
hliðstæða viðurkenningu og fengist hefði með undirskrift samkomulagsins.
Þá ber þess að geta, að í erindisbréfi til nefndarinnar, sem fjallaði um
fjármál félagsins, getur ráðherra greinargerðar félagsins og kveður ráðu-
neytið fallast á þá skilgreiningu, sem þar er sett fram á hinum félagslega
þætti.
Uppsagnir rádunauta. Á fundi sínum 16. júní ákvað stjórnin með tilliti til
þeirra fjárhagserfiðleika, sem félagið átti við að stríða, að gera ráðstafanir
til þess að hafa samninga fastra starfsmanna lausa um næstu áramót. Þetta
taldi stjórnin óumflýjanlegt vegna þeirrar óvissu, sem enn ríkti og lýst hefur
verið. í samræmi við þetta var þeim af ráðunautum félagsins, sem höfðu
starfssamninga með sex mánaða uppsagnarfresti bundnum við áramót, sent
uppsagnarbréf. Þar voru ástæður skýrðar og jafnframt tekið fram að
stjórnin vonaðist til að geta sem fyrst dregið uppsagnirnar til baka og yrði
það gert þegar séð væri að félagið gæti starfað með eðlilegum hætti á árinu
1989. Bréfin voru send viðkomandi ráðunautum 29. júní.
Þar sem svo seint gekk, sem að framan hefur verið lýst, að fá tekið á
þessum málum, ákvað stjórnin á fundi 20. sept að senda þeim ráðunautum,
sem höfðu þriggja mánaða uppsagnarfrest, einnig slíkt uppsagnarbréf og
var það gert 29. september.
Stjórnin átti snemma í júlí fund með ráðunautum og nokkru síðar með
öllu starfsfólki félagsins, þar sem ástæður uppsagna voru skýrðar og staða
félagsins rædd. Þegar hvorki gekk né rak í þessum málum fram eftir sumri
voru fleiri síkir fundir haldnir og málin rædd.
Starfsfólkið tók þessu með skilningi og ráðunautar og trúnaðarmenn
starfsfólks beittu sér með ýmsum hætti til að afla aukins skilnings á
málefnum félagsins, m.a. með því að ganga á fund landbúnaðarráðherra
bæði fyrir og eftir stjórnarskiptin. Pá leituðu ráðunautar eðlilega til
stéttarféiags síns, Félags íslenskra náttúrufræðinga, og auk þess sem það
skýrði réttarstöðu þeirra veitti það Búnaðarfélaginu stuðning bæði með
ályktunum, bréfaskriftum og viðræðum við ráðandi aðila.
Er frumvarp til fjárlaga var lagt fram í lok október kom í ljós, að ekki var
gert ráð fyrir neinni hlutfallslegri hækkun á fjárveitingu til Búnaðarfélags-
ins, en vísað til þess að nefndin, sem að framan er getið, hefði málið til
athugunar. Þó að umrædd nefnd hefði lítinn tíma til starfa aflaði hún sér
mikilvægra upplýsinga, m.a. fól hún ríkisendurskoðun að kynna sér stöðu
Búnaðarfélagsins á grundvelli bókhaldsins fyrir yfirstandandi ár og var
12