Búnaðarrit - 01.01.1989, Qupperneq 49
Sauðfjárrœktarráðunauturinn
Árið 1988 var ég sem fyrr í hálfu starfi hjá
Búnaðarfélagi íslands með sama verksvið.
Haustið 1987 var ásett sauðfé í landinu
624.087 kindur alls, þar af 519.393 ær, og
hafði fé fækkað milli ára um 50.978 kindur
eða 7,6%. Vænleiki dilka var minni en haust-
ið 1987, enda var bæði kalt og vætusamt um
mikinn hluta landsins framan af sumri. Hins
vegar viðraði yfirleitt vel á fé síðsumars og
víðast töldu menn gróður standa lengi. Slátr-
að var 669.945 lömbum, og lögðu þau sig með
14,26 kgfall að jafnaði, sem er0,35 kg léttara
en 1987, en það ár var vænleiki með allra
mesta móti. Dilkakjötsframleiðslan nam nú tæpum 9.552 tonnum og
kindakjötsframieiðslan í heild 10.543 tonnum. Hér er um að ræða 10%
samdrátt í dilkakjöti og um 16% í heildarframleiðslu kindakjöts, en hér er
ekki talið með kjöt á vegum Sauðfjárveikivarna eða Framleiðnisjóðs fremur
en fyrr.
S.l. sumar var reglum um mat á kindakjöti breytt enn á ný. Hvað
dilkakjötið varðar var fyrst og fremst um nafnabreytingar að ræða, nema
hvað í stað stjörnuflokksins var tekinn upp nýr flokkur, Dl-ÚRVAL, sem
skyldi verða mun stærri en stjörnuflokkurinn var og taka vöðvamesta kjötið
úr 1. flokknum innan ákveðinna fitumarka. Meðfylgjandi tafla sýnir
skiptingu dilkakjötsins í gæðaflokka tvö síðast liðin haust og meðalfall-
þunga í hverjum flokki.
Nú fóru 8% af dilkakjötinu í úrvalsflokkinn, sem er reyndar nokkru lægra
en vonast hafði verið til. Svipað hlutfall féll í filtuflokkana og á fyrra ári
þrátt fyrir minni fallþunga nú. U.þ.b. 1,4% af kjötinu féll í mati vegna
verkunargalla eða annarra skemmda, þ.e. kjötið í X-flokkunum, sem nú
var tekið út úr 2. og 3. flokki.
Hrúta- og afkvœmasýningar. Aðalsýningar á sauðfé fóru nú fram á
Snæfellsnesi, í Dalasýslu og í Vestfjarðakjördæmi öllu. Auk þess var boðið
upp á afkvæmasýningar á Norðurlandi vestan Fnjóskadals og í Borgarf jarð-
arsýslu. Eg var aðaldómari á öllum hrútasýningum á Snæfellsnesi, í
Dalasýslu, Strandasýsluog við ísafjarðardjúp, þ.e. íSnæfjalla-, Nauteyrar-,
Reykjafjarðar- og Ögurhreppum, en Jón Viðar Jónmundsson dæmdi
Sigurgeir Porgeirsson
47