Búnaðarrit - 01.01.1989, Blaðsíða 215
Kveðið er á um hlutverk ráðunauta og menntun. Um hlutverk þeirra
segir að þeir skuli veita faglegar leiðbeiningar um ræktun og hirðingu
búfjár, hvetja til framfara í framleiðslu búvara m.a. með kynningu á
nýjustu niðurstöðum rannsókna og annarra nýjunga sem að gagni mega
koma. Um menntun segir að þeir skuli hafa lokið kandidatsprófi í
búfræði.
Pá er ákvæði um, að óheimilt sé að fela landsráðunaut önnur störf en
teljast til faglegra leiðbeininga eða ráðgjafar. Tilgreind eru störf s.s.
framkvæmdastjórn fyrir búfjárræktarsamband eða búgreinasamtök.
Þetta ákvæði á að tryggja, að þeir fjármunir sem ríkissjóður greiðir
vegna starfa landsráðunauta verði í reynd til að greiða fyrir faglegar
leiðbeiningar og ráðgjöf, en ekki ýmiss konar stjórnunarstörf.
Ákvæði er um, að ríkissjóður greiði kostnað við störf landsráðunauta
þ.e. laun, ferðakostnað, skrifstofukostnað, nauðsynleg áhöld og annað
það sem starfið krefst til þess að ná tilgangi sínum.
Pá er ákvæði um að ríkissjóður greiði 65% af launum héraðsráðunauta
og sama hlutfall af ferðakostnaði þeirra. Loks er ákvæði um að
landbúnaðarráðherra setji nánari reglur um menntun og starfssvið
ráðunauta, launakjör og ferðakostnað, sem þátttaka ríkisins skal
miðuð við, að fengnum tillögum Búnaðarfélags íslands.
Þessi grein kemur í stað hliðstæðra ákvæða í gildandi lögum nr. 31/
1973.
Um 9. gr.
Greinin fjallar um stofnun og rekstur ræktunarstöðva og þátttöku
ríkissjóðs í stofnkostnaði og rekstri þeirra.
Kveðið er á um
a) Greiðslu á allt að helmingi stofnkostnaðar einnar ræktunarstöðvar
fyrir hverja búfjártegund, þó með þeim fyrirvara að hún þjóni öllum
bændum í viðkomandi grein. Heimilað er að hafa þessar stöðvar fleiri
fyrir hverja grein ef sérstakar ástæður eru fyrir hendi sem landbúnaðar-
ráðherra metur gildar, að fengnum tillögum Búnaðarfélags ísiands.
Þar gæti t.d. verið um heilbrigðisástæður að ræða eða samninga sem
þegar liggja fyrir.
Uppálagt er að nýta aðstöðu á ríkisbúum í þessum tilgangi, eftir því
sem tök eru á.
Ræktunarstöð er skilgreind með þrennu móti:
1. Sæðingastöð. Undir þessa skilgreiningu falla Nautastöðin á Hvann-
eyri og dreifistöðvar tengdar henni. Einnig sauðfjársæðingastöðv-
arnar í Laugardælum, Borgarnesi og Möðruvöllum og refasæðinga-
stöðvar sem starfræktar hafa verið við bændaskólana á Hólum og
Hvanneyri og víðar á undanförnum árum. Refasæðingar hafa
213