Búnaðarrit - 01.01.1989, Blaðsíða 161
GREINARGERÐ:
Tímamörk frumvarpsins ættu að geta gilt varðandi innlegg allt að
fullvirðisrétti hvers framleiðanda. Bent skal á, að þeir, sem leggja inn
kindakjöt hjá fleiri en einum aðila, þurfa að geta sýnt með öruggum hætti,
hvað líður nýtingu á fullvirðisrétti strax og innleggi lýkur.
Uppgjör á því, sem innlagt kann að verða umfram fenginn rétt, getur
þurft að bíða, þar til fyrir liggur, hvert heildarinnleggið er, og hvernig
uppgjöri kann að verða háttað fyrir innlegg umfram fullvirðisrétt, ef það
færist milli einstaklinga og/eða svæða og greiðsla kemur fyrir.
Mál nr. 10
Erindi Guttorms V. Þormars varðandi rannsóknir á háhitasvœðinu við
Kverkfjöll.
Var vísað til allsherjarnefndar, en hlaut ekki afgreiðslu.
Formaður nefndarinnar skýrði þinginu frá því, að þau efnisatriði, sem
fram koma í erindinu, væru í athugun og því ekki ástæða til að álykta í því.
Mál nr. 11
Erindi Guttorms V. Þormars um rœktun nytjaskóga á Fljótsdalshéraði.
Málið afgreitt með eftirfarandi ályktun, sem samþykkt var með 25 sam-
hljóða atkvæðum:
Búnaðarþing felur stjórn Búnaðarfélags íslands að beita sér fyrir í
samráði við Búnaðarsamband Austurlands, Skógrækt ríkisins og Fram-
leiðnisjóð landbúnaðarins, að gerð verði áætlun um ræktun nytjaskóga á
Fljótsdalshéraði.
GREINARGERÐ:
Að undanförnu hafa áhugamenn á Austurlandi unnið verðmætt starf til
undirbúnings ræktunar nytjaskóga á Austurlandi, sem meðal annars byggist
á þeim breytingum, sem nú eiga sér stað í landbúnaði. Sérstök áherzla er
lögð á, að frumkvæði og framkvæmdir verði í höndum skógarbænda og
forustumanna þeirra.
Við umfjöllun Búnaðarþings um frumvarp til laga um skógrækt hefur
þingið haft þessi sjónarmið í huga auk þess sem sérstaklega er bent á í
erindi Guttorms V. Þormars um ræktun nytjaskóga á Fljótsdalshéraði.
Á fylgiskjali I birtist greinargerð á þingskjali 11 til frekari skýringa á
málinu.
159