Búnaðarrit - 01.01.1989, Side 73
Nefndastörf
Ég átti sæti sem fulltrúi Búnaðarfélagsins í fóðurnefnd, sbr. lög nr. 53/1978.
Engir formlegir fundir voru haldnir í nefndinni á árinu og mér er ekki
kunnugt um að miðað hafi starfi á hennar vegum að samningu og frágangi
nýrrar fóðurreglugerðar.
Á árinu starfaði ég sem fulltrúi Búnaðarfélagsins í stjórnarnefnd sótt-
varnarbúsins á Möðruvöllum. Alls voru haldnir fjórir formlegir stjórnar-
fundir á árinu. Um miðbik þess var byrjað að dreifa dýrum (,,villimink“) frá
búinu, - afkvæmum dýranna sem flutt voru inn frá Danmörku í apríl 1987.
Sú leið var valinn að selja ákveðinn „dýrapakka“, þannig að allir kaupendur
sætu við sama borð. Söluverð hvers pakka var ákveðið þannig, að það stæði
undir rekstrarkostnaði búsins yfir sóttvarnartímabilið (14 mán.) svo og
innkaupsverði næsta innflutnings. Þegar á heildina er litið held ég að
kaupendur dýranna séu almennt ánægðir. Því er hins vegar ekki að leyna,
að við ýmsa byrjunarörðugleika hefur verið að fást í sambandi við þennan
fyrsta innflutning að Möðruvöllum, og enn skortir nokkuð á að búið sé að
finna sóttvarnarbúinu traustan rekstrargrundvöll.
Þegar þetta er ritað standa yfir viðræður við norskan loðdýrabónda,
Jakob Mæle, um kaup og innflutning á 200 pöruðum svartminkslæðum í
apríl 1989, að uppfylltum þeim skilyrðum um heilbrigði, sem yfirdýralæknir
hefur sett. Undanfarið ár hafa verið kannaðir möguleikar á innflutningi frá
Danmörku, en vegna útbreiðslu á sjúkdómnum „plasmacytoses“ þar var
innflutningur ekki talinn ráðlegur.
Ég sat í. verkefnisstjórn um „Rannsóknir á loðdýrafóðri", sem kostað er
af Rannsóknaráði ríkisins, en á árinu veitti það viðbótarstyrk að upphæð kr.
1500 þús. til verkefnisins. Ekki var unnið að beinum rannsóknum á árinu,
en hafinn undirbúningur að tilraunum, sem ráðgerðar eru á árinu 1989.
Ég átti sæti í s.k. „fóðurráði“ á vegum SÍL og Sambands fóðurframleiðenda
og aðstoðaði þar í faglegum málefnum fóðurstöðvanna eftir því sem óskað
var eftir.
Búnaðarþátturinn
Frá og með 1. október tók ég að mér umsjón með búnaðarþættinum í
ríkisútvarpinu. Eins og jafnan áður hefur verið reynt að hafa efni þáttanna
sem fjölbreyttast og að sinna sem flestum þáttum búskaparins, bæði með
viðtölum og beinunr erindaflutningi. Vel hefur gengið að afla efnis í þáttinn,
og óhætt er að fullyrða, að meðal starfsfólks ríkisútvarpsins nýtur búnaðar-
þátturinn bæði skilnings og mikils velvilja.
71