Búnaðarrit - 01.01.1989, Page 102
stökkum í fjárfestingu og aðlögun að nýju kerfi. Reynslan hefur sýnt að verð
á eldri búnaði fellur mjög hratt eftir að nýjar gerðir koma á markað og menn
fara að endurnýja. Nýja vélin var afhent fyrir áramót, en uppsetning beið
fram á nýja árið.
Forðagæsla
Ég annaðist úrvinnslu forðagæsluskýrslna eins og undanfarin ár. Niður-
stöður forðagæsluskýrslna 1987 birtust í aprílhefti Hagtíðinda og í 22. tbl.
Freys. Þá var að nokkru gerð grein fyrir niðurstöðum í viðtali við
undirritaðan í 12. tbl. Freys. Óvenju stór hluti forðagæsluskýrslna 1988
hafði borist nú fyrir áramót. Einkum voru það skýrslur af Austur- og
Norðurlandi, t.d. höfðu skýrslur borist úr öllum hreppum Norður-Múla-
sýslu.
Stjórn Bjargráðasjóðs tók ákvörðun um að greiða bætur til þeirra bænda
á Austur- og Norð-Austurlandi sem skorti fóður, en á þessu svæði fóru
saman lítil uppskera og miklir óþurrkar s.l. sumar. í desember vann ég fyrir
Bjargráðasjóð úr stórum hluta skýrslna af þessu svæði.
í nóvember fór ég á fundi með forðagæslumönnum í öllum sýslum
Suðurlands og í Múlasýslum til að ræða framkvæmd forðagæslu, frágang og
úrvinnslu skýrslna. Auk mín sat Sveinn Sigurmundsson alla fundina á
Suðurlandi og auk hans Einar Þorsteinsson í Vestur-Skaftafellssýslu. Jón
Snæbjörnssonsatfundinn íMúlasýslum. Þessirfundirvoru mjögánægjuleg-
ir og gagnlegir. Víðast mættu nær allir forðagæslumenn á fundina og
umræður voru líflegar.
Önnur störf
Ég var formaður í nefnd á vegum ráðunauta félagsins, sem tók starfsemi
Búnaðarfélagsins til skoðunar. Auk mín voru í nefndinni þeir Gunnar
Guðmundsson og Ólafur R. Dýrmundsson. Talsverður tími fór í þessa
vinnu framan af árinu, en henni lauk með skýrslu, sem m.a. var afhent
búnaðarmálastjóra og stjórnarmönnum B.I. Ég varði nokkrum tíma í
undirbúning upplýsingabanka, s.s. að yfirfara lögbýiaskrá og samræma
hana skrá Fasteignamats ríkisins og einnig að afla upplýsinga erlendis frá.
Að öðru leyti var þessum málum skotið á frest þar til fest hefðu verið kaup á
nýju tölvunni, sem áður er getið, en hún býður upp á ýmsa nýja möguleika
við uppbyggingu gagnabanka.
I marsmánuði sat ég fund hjá Bútæknideild um súgþurrkunarmál. Þá hef
ég á árinu sótt allmargar kynningar og ráðstefnur hérlendis um tölvumál.
Ég sit sem fulltrúi ráðunauta B.í. í kjararáði Félags ísl. náttúrufræðinga.
Loks má nefna að ég kenndi nokkrar stundir við Búvísindadeildina á
Hvanneyri eins og undanfarin ár. Ég vil að lokum þakka samstarfsfólki
mínu ánægjulegt samstarf.
Pétur Þór Jónasson.