Búnaðarrit - 01.01.1989, Blaðsíða 98
Búreikningastofa landbúnaðarins.
Starfsemi stofunnar var með svipuðu sniði og
verið hefur. Árið 1987 fullgerði 171 bóndi
búreikning í samvinnu við hana. Var þeim -
ásamt fáeinum bændum, sem hættu búskap á
árinu 1987 og luku því ekki uppgjöri - sent
skattuppgjör til notkunar við gerð landbún-
aðarframtals í byrjun apríl. Fylgdi því tölvu-
unnin fyrningarskýrsla í öllum tilfellum. Sótt
hafði verið um framtalsfrest til 15. apríl og
fékkst hann undantekningarlaust. Endan-
legu uppgjöri lauk um 20. júlí og var niður-
stöðum skilað til verðlagsnefndar búvara í
byrjun ágúst.
Eftirtaldir fulltrúar unnu að uppgjöri reikninga ársins 1987. Jóhann
Ólafsson fyrir Dalasýslu, Vestfirði, V-Húnavatnssýslu og Múlasýslur (49
reikningar); PéturK. Hjálmsson fyrir Borgarfjörð, Mýrar, Snæfellsnes, A-
Húnavatnssýslu, Skagafjörð, Eyjafjörð og S-Þingeyjarsýslu (61 reikning-
ur); Þorbjörg Á. Oddgeirsdóttir fyrir Árnes-, Rangárvalla- og Skaftafells-
sýslur (57 reikningar). Sigurður Árnason, Hjarðarási, og Benedikt Björg-
vinsson, ráðunautur, sáu um reikninga í N-Þingeyjarsýslu (4).
Starf fulltrúa er einkum fólgið í lyklun færslna á sjóð-, viðskipta- og
efnahagsreikningum ásamt afstemmingu bókhalds. Einnig fer nokkur
vinna í frágang á vinnuskýrslum fyrir tölvuskráningu. Jafnframt sjá fulltrúar
um færsluleiðbeiningar hver á sínu starfssvæði.
Vegna takmarkaðs rekstrarfjár varð að fella niður heimsóknir til bænda
að mestu leyti. Þó heimsótti undirritaður alla nýliða í búreikningahaldi, svo
og alla reikningshaldara í Múlasýslum, en þar voru einnig flestir nýliðarnir.
Ársskýrsla o.fl.
Samkvæmt lögum um Búreikningastofuna ber að birta yfirlitsskýrslu um
niðurstöður búreikninga ár hvert. Ársskýrsla fyrir árið 1987 kom út í lok
nóvember, 58 blaðsíður að stærð og prentuð í 1000 eintökum.
Fjölskyldutekjur af landbúnaði voru að meðaltali kr. 1.102.118 (hækkun
frá fyrra ári 32,4%) og auk þess kr. 88.222 í launatekjur hjóna fyrir vinnu
utan bús. Verulegur munur er á hækkun fjölskyldutekna eftir bútegundum,
og munur milli bútegunda er mun minni en hann var árið 1986. Samanburð-
Jóhann Ólafsson
96