Búnaðarrit - 01.01.1989, Page 34
II. Skýrsla Garðars R. Árnasonar
Eins og fram kemur í starfsskýrslu minni
fyrir 1987 var ég me'ð talsverða kennslu við
Garðyrkjuskólann skólaárið 1987/’88 og var
því í 75% starfi hjá Búnaðarfélaginu fram á
vor, en síðan í fullu starfi.
Störf mín á árinu 1988 voru, eins og við var
að búast, einkum í þágu garðyrkju og garð-
ræktar, bæði fyrir atvinnu- og áhugamenn.
Þar af fór mestur tími í að sinna ýmiss konar
ræktunarleiðbeiningum fyrir garðyrkju-
bændur. Mikið var um símahringingar og
nokkuð um bréflegar fyrirspurnir, sem ég
reyndi að svara eftir bestu getu.
Eftir því sem tök og fjármagn leyfðu, var reynt að heimsækja mikilvæg-
ustu garðyrkjuhverfin reglulega. í janúar var ég á ferð milli garðyrkjubænda
í Borgarfirði og aftur í febrúar. I febrúar heimsótti ég garðyrkjubændur í
Eyjafirði, í mars var farið um Hveragerði, Laugardal og Biskupstungur, í
maí um Hrunamannahrepp, Borgarfjörð og Biskupstungur, í júlí um
Laugardal, Biskupstungur og Hveragerði, í ágúst um Laugardal, Biskups-
tungur og Hrunamannahrepp, í september um Mosfellssveit og Biskups-
tungur, í október um Hrunamannahrepp og Mosfellssveit og í nóvember
um Hveragerði.
Talsvert var um fræðslufundi á árinu. I janúar og febrúar hélt ég nokkra
fræðslufundi í Borgarfirði og uppsveitum Árnessýslu um ræktun tómata,
gúrkna og papriku. I febrúar flutti ég auk þess erindi á fundi parðyrkju-
bænda og blómakaupmanna um meðferð og endingu túlípana. I maí flutti
ég fræðsluerindi á aðalfundi Garðyrkjubændafélags Borgarfjarðar um
áburðargjöf á tómötum og papriku. Ennfremur hélt ég stutt erindi á
aðalfundi Garðyrkjubændafélags Hveragerðis og nágrennis. Fyrir áhuga-
menn flutti ég tvö fræðsluerindi um ræktun grænmetis í heimilisgörðum.
Það fyrra var haldið á Akureyri í febrúar á vegum Búnaðarsambands
Eyjafjarðar og það síðara í Garðabæ í apríl.
I tengslum við fræðslustarfið samdi ég 30 mín. þátt fyrir Fræðsluvarp
sjónvarpsins um ræktun grænmetis í heimilisgörðum.
I byrjun júní dvaldi ég um vikutíma í Skagafirði að frumkvæði Búnaðar-
ifc *
Garðar R. Árnason
32