Búnaðarrit - 01.01.1989, Síða 115
Landgræðslustarfið fór fram með svipuðu sniði og verið hefur á síðustu
árum. Það sem efst var á baugi í ársbyrjun var að hafist var handa um að
koma upp fræverkunarstöð í húsakynnum Fóður og fræframleiðslunnar í
Gunnarsholti, en graskögglaframleiðsla hefur legið þar niðri um sinn. í
þessari stöð verður húðað allt það grasfræ, sem Landgræðslan dreifir með
flugvélum. Auk þess verður þurrkað og hreinsað það lúpínufræ og fræ af
beringspunti, sem uppskorið er í Gunnarsholti. Allt melfræ, sem stofnunin
lætur safna, verður einnig verkað í stöðinni. Hún var formlega gangsett af
þáverandi landbúnaðarráðherra, Jóni Helgasyni, 26. maí.
Jón Guðmundsson, sérfræðingur hjá RALA, hefur verið okkur til
aðstoðar í fræverkun t.d. varðandi smitun lúpínufræs og annað er lýtur að
sáningum í fræakrana ásamt ýmsum öðrum málefnum. Sáð var í 60 hektara
lúpínuakur og 50 hektara Beringspuntsakur til frætöku.
Tilkoma þessarar fræverkunarstöðvar er einhver stærsti áfangi í land-
græðslustarfinu síðan landgræðsluflugvélarnar komu til sögunnar
Áhersla var lögð á endurnýjun og viðhald landgræðslugirðinganna.
Samtals þarf aó fara með og líta eftir 67 girðingum, sem eru um 935 km að
lengd. Unnið var skipulega að endurnýjun nokkurra girðinga, þar sem
hlutar viðkomandi girðinga eru girtar upp á nýtt. Á árinu 1988 voru það
aðallega girðingarnar í Þorlákshöfn og á Hólsfjöllum. Um aðrar girðingar
gildir það, að gert er við þær á vorin og síðan fylgst með þeim.
Nýjar girðingar á árinu voru: Jökulsárgljúfur í Kelduneshreppi samtals 20
km að lengd, Húsafellsgirðing 5,3 km og Vogar á Vatnsleysuströnd 6 km.
Tvær fyrrnefndu girðingarnar voru girtar í samvinnu við Náttúruverndar-
ráð.
Landgræðsluflugið var með svipuðum hætti og undanfarin ár, sjá starfs-
skýrslu Stefáns H. Sigfússonar.
Melskurður hófst í lok ágúst. Byrjað var aðskeraá Landeyjasandi, en þar
voru að verki feðgarnir Jón og Sigurður í Hallgeirsey með heimasmíðaða
sláttuvél. Handskorin voru samtals um fjögur tonn í Álftaveri og Meðal-
landi. Slegið var með tveimur sláttuvélum frá Landgræðslunni í land-
græðslugirðingunum í Vík, Pétursey, Þorlákshöfn, Sauðlauksdal og í
Kelduhverfi. Samtals söfnuðust um 30-35 tonn af óþresktu melfræi. Fræið
var þurrkað bæði í eldri aðstöðu Landgræðslunnar í Gunnarsholti og í nýju
fræverkunarstöðinni.
Landgræðslan safnaði einnig nokkur hundruð kílóum af snarrótarfræi í
Kelduhverfi og meðfram vegum austan Selfoss og var svokallaður fræsópari
eða „strípari" notaður til verksins. Ennfremur var safnað með fræsóparan-
um nokkrum tonnum af íslensku vallarsveifgrasfræi á gömlum akri hér í
Gunnarsholti.
Fyrir atbeina Árna Gestssonar, forstjóra Glóbus hf., var stofnað til
„Átaks í landgræðslu", sem ætlað er að vera til aðstoðar Landgræðslunni
R 113
L