Búnaðarrit - 01.01.1989, Qupperneq 205
Ráðherra getur, að fenginni umsögn Búnaðarfélags íslands, viðurkennt
einstök búgreinasamtök til að fara, að einhverju eða öllu leyti, með þau
verkefni sem ákveðin eru í lögum þessum og snerta viðkomandi búgrein.
5. gr.
Sérstakar búfjárræktarnefndir skulu skipuleggja og veita forystu ræktun-
arstarfi vegna einstakra búfjártegunda. Landbúnaðarráðherra skipar bú-
fjárræktarnefndir til tveggja ára í senn. í búfjárræktarnefnd skulu sitja fimm
menn og jafnmargir til vara. Af þeim skulu tveir vera úr hópi bænda í
viðkomandi búgrein, kosnir af búgreinasamtökum hennar, séu þau fyrir
hendi, en ella skulu Búnaðarfélag íslands og Stéttarsamband bænda
tilnefna hvor sinn mann. Tveir skulu vera starfandi héraðsráðunautar,
kosnir af Búnaðarþingi. Fimmti fulltrúinn skal vera starfandi landsráðu-
nautur í viðkomandi grein (héraðsráðunautur ef landsráðunautur er ekki
starfandi), tilnefndur af stjórn Búnaðarfélags Islands. Búfjárræktarnefnd
kýs sér formann úr sínum hópi.
Heimilt er að fulltrúar í búfjárræktarnefnd séu þrír eða sjö, ef sérstakar
ástæður mæla með, þó skulu bændur ætíð eiga þar minnst tvo fulltrúa.
Sé starfandi fagráð, sem bæði búgreinasamtök í viðkomandi búgrein og
Búnaðarfélag íslands eru aðilar að, getur ráðherra falið því verkefni
búfjárræktarnefndar í viðkomandi búgrein.
6. gr.
Hlutverk búfjárræktarnefnda eru m.a. eftirfarandi:
a) að móta ræktunarstarfið þ.m.t. rekstur ræktunarstöðva, skýrsluhald,
búfjár- og afurðadómar, val kynbótagripa og önnur viðfangsefni, er
stuðlað geta að framförum í viðkomandi grein,
b) að gera tillögur um innflutning erlendra búfjárkynja,
c) að vera þeim, sem annast leiðbeiningar, rannsóknir, kennslu og bú-
fjárvernd til ráðuneytisum þaðsem lýturað viðkomandi búfjártegund,
d) að vinna verk- og kostnaðaráætlanir vegna búfjárræktarstarfs búnaðar-
sambandanna í viðkomandi grein.
7. gr.
Búnaðarsambönd skulu setja sér samþykkt, búfjárræktarsamþykkt, um
tilhögun búfjárræktar á sambandssvæðinu. Þar skal, eftir því sent vænlegast
þykir til árangurs, taka fram;
a) að búfjárrækt á sambandssvæðinu lúti stjórn búnaðarsambandsins,
b) að verkefni búnaðarsambands á sviði ræktunar einstakra búfjárteg-
unda séu falin búfjárræktarsamböndum eða búfjárræktarfélögum,
c) að framkvæmd búfjárræktarmála sé falin búgreinafélögum eða bú-
greinasamböndum, enda hafi þau ræktun búfjár á stefnuskrá sinni.
Nánar skal kveðið á um búfjárræktarsamþykktir í reglugerð.
203