Búnaðarrit - 01.01.1989, Side 162
Fylgiskjal I með ályktun í máli nr. 11
„Erindi Guttorms V. Þormars
um ræktun nytjaskóga á Fljótsdalshéraði
ÁLYKTUN:
Búnaðarþing ályktar að fela stjórn Búnaðarfélags íslands að beita sér
fyrir setningu reglugerðar um ræktun nytjaskóga á allt að 20 þús. ha Iands á
Fljótsdalshéraði á árabilinu 1989 til 2009.
Framkvæmdakostnaður verði greiddur af Framleiðnisjóði, Byggðasjóði
og árlegri fjárveitingu á fjárlögum hvers árs úr ríkissjóði.
GREINARGERÐ:
Reynslan hefur sýnt og sannað, að skilyrði til skógræktar á Fljótsdalshér-
aði eru ein hin beztu hér á landi. Mun hið sérstæða veðurfar, sem oft hefur
verið líkt við meginlandsveðráttu, ráða þar miklu um.
Stjórn skógarbænda á Héraði hefur tekið saman eftirfarandi hugmyndir
að ræktun nytjaskóga:
„1. Gerð verði áætlun um fjármögnun og framkvæmdir, sem hafizt
verði handa um eigi síðar en vorið 1989.
2. Framkvæmdir verði á vegum stjórnar félags skógarbænda á Héraði
undir stjórn skógfræðings, er annist ráðgjöf og verkstjórn. Skóg-
fræðingurinn verði í hálfu og/eða fullu starfi sem ráðunautur í
þessari búgrein og starfi á vegum B.S.A.
3. Jarðeigandi hafi óskoraðan eignarrétt á landi og skógi. Hann beri
ábyrgð á varðveizlu skóglendis á sinni jörð. Þegar kemur að nytjum
skógarins til tekjuöflunar, verði jarðeiganda skylt að gróðursetja
eina plöntu fyrir hvert fellt tré.
4. a. Með sérstakri löggjöf um nytjaskógrækt bænda á Héraði verði
tryggt verðtryggt opinbert fjármagn á fjárlögum hvers árs til stofn-
framkvæmda við Héraðsskóg næstu 20 ár. Allur framkvæmdakostn-
aður s.s. plöntur, gróðursetning, framræsla, vegir, girðingar, gæzla,
eftirlit o.þ.h.
4.b. Starfandi bændum, sem leggja jarðir sínar að hluta eða öllu leyti til
skógræktar, verði tryggð eftirfarandi réttindi með væntanlegri lög-
gjöf og/eða sérstökum samningi:
a) Hluta- eða fullt ársstarf við Héraðsskóg eftir því, sem hver og
einn óskar. Við mat á starfsréttindum verði tekið tillit til stærðar
framboðins lands til skógræktar á viðkomandi jörð.
b) Forgangsréttur heimilisfólks á skógarjörðum verði óskoraður til
vinnu við Héraðsskóg.
c) Bændur og annað heimilisfólk á skógarjörðum, sem nýtur
160