Búnaðarrit - 01.01.1989, Page 39
fluttar voru til Hríseyjar í upphafi. Var þetta sögulega efni látið ganga fyrir
úrvinnslu úr nýrri gögnum um ræktunina, sem vissulega hefði verið
hagnýtari fróðleikur.
Afmœlisrit Búnaðarfélags Islands. Nokkrum dögum fyrir jól kom þetta rit
út, sem er hátt í 11. hundrað bls. Skýrir búnaðarmálastjóri nánar frá því í
skýrslu sinni. Hann var formaður þriggja manna ritnefndar, sem í áttu sæti
auk hans formaður félagsins og undirritaður. Fór nefndarformaður fram á
það við mig í ársbyrjun, að ég læsi yfir allar greinar í ritinu, sem þá voru í
próförkum á ýmsu stigi, og leiðrétti það, sem ég yrði var við, að mönnum
hefði sézt yfir við lestur. Formaður nefndarinnar fór síðan yfir allar
athugasemdir og bætti við leiðréttingar. Leitað var til höfunda í þeim fáu
tilvikum, sem ástæða þótti til. Þrátt fyrir þetta hefði þurft að gefast rýmri
tími til yfirferðar á lokasprettinum. Mér telst svo til, að um þriðjungi af
starfstíma mínum á árinu hafi ég varið í þetta og önnur skyld verk í
sambandi við útgáfuna. Afsökun mín er þá sú, að sem ritnefndarmanni var
mér málið skylt. Nefndin hélt nokkra fundi á árinu.
Búnaðarþing. Eins og áður var ég skrifstofustjóri Búnaðarþings, sem
stóð frá 22. febr. til 4. marz. Vikan fyrir þingið fór til undirbúnings þess og
næstu dagar eftir þing til að ganga frá málum í hendur félagsstjórnar og
gögnum til geymslu. Ég bjó svo Búnaðarþingstíðindi undir prentun í
samráði við búnaðarmálastjóra.
Bœndahöllin. Ég átti áfram sæti í stjórn Bændahallarinnar, sem heldur
fundi mánaðarlega. Konráð Guðmundsson, framkvæmda- og hótelstjóri,
mun væntanlega skýra Búnaðarþingi frá stöðu mála og reikningum Bænda-
hallarinnar.
Ég þakka stjórn félagsins, búnaðarmálastjóra, samstarfsfólki og þeirn
bændum, er ég átti skipti við á árinu, ánægjulega samvinnu.
30. dcs. 1988,
Ólafur E. Stefánsson
37