Búnaðarrit - 01.01.1990, Blaðsíða 35
að hausti. Framleiðsla og sala pottaplantna var með sviðpuðu sniði og á
síðasta ári.
Á síðustu árum hefur notkun raflýsingar aukist mikið, frá hausti og fram
á vor og hefur því orðið umtalsverð framleiðsluaukning á þeim árstíma,
einkum í framleiðslu afskorinna blóma. Þessi þróun á eflaust eftir að halda
áfram, því að mikill áhugi er fyrir raflýsingu að vetri, en raforkuverð og
tilkostnaður stendur henni fyrir þrifum.
Á árinu olli nýtt meindýr, ameríska blómatripsið, miklum skakkaföllum í
nokkrum gróðrarstöðvum. Blómatripsið hefur breiðst mjög hratt út í
Evrópu á allra síðustu árum og hefur borist hingað til lands nteð innflutn-
ingi. Þetta meindýr er mjög erfitt viðureignar, bæði vegna þess að það er
með mikla mótstöðu gegn plöntulyfjum og lifir vel varið djúpt inni í blómum
og knúppum. Til að fást við þetta meindýr var myndaður starfshópur, sem í
sátu auk mín þeir Sigurgeir Ólafsson og Halldór Sverrisson frá Rala. Til að
kanna útbreiðslu blómatripsins hér á landi, fórum við og leituðum í nær
öllum garðyrkjustöðvum landsins. Blómatrips fannst á f7 stöðum, þar af
voru 5 utan Hveragerðis. I framhaldi af þessari könnun héldum viö 3
fræðslufundi með garðyrkjubændum um varnir gegn blómatripsi, í Borgar-
firði, Hveragerði og Biskupstungum.
Auk fyrrnefndra 3 fræðslufunda um varnirgegn blómatripsi, tók ég þátt í
2 fræðslufundum um ræktun útigrænmetis. Auk þess hélt ég stutt erindi á
haustfundi Sambands garðyrkjubændaogágarðyrkjuþingi, sem haldið-var í
tilefni af 50 ára afntæli Garðyrkjuskólans. Gott samstarf var við garðyrkju-
skólana um tilraunir og endurmenntun og er ég m.a. með í vinnuhópi um
hönnun á ræktun ívikri. Ennfremur var ég prófdómari í nokkrum fögum við
skólann.
Rétt eins og á síðustu árum tók ég virkan þátt í starfi NJF og á ég sæti í
aðalstjórn „Sektion III-Hagebruk“ og í stjórn grænmetisdeildarinnar. Á
árinu sótti ég tvo stjórnarfundi í „Sektion III“.
Ásamt Ólafi Dýrmundssyni og fulltrúum frá Rala átti ég sæti í undirbún-
ingsnefnd ráðunautafundar 1989, sem haldin var 6.-10. febrúar.
Mikið var um að gefa þyrfti umsagnir til Eiturefnanefndar vegna
umsókna um eiturleyfisskírteini, svo og til Stofnlánadeildar landbúnaðar-
ins. Einnig var allmikið um að gefa þyrfti matsgerðir vegna ýmiss konar
tjóna.
Að lokum vil ég þakka öllum garðyrkjubændum, félagasamtökum þeirra
og öðru samstarfsfólki gott samstarf og samvinnu á árinu.
Garðar R. Arnason
3
33