Búnaðarrit - 01.01.1990, Blaðsíða 86
byrjuðu í smáum stíl til reynslu, hafa ekki lagt í að fjárfesta eða stækka
reksturinn og hætt, þótt þeim hafi að öðru leyti litist vel á þessa búgrein.
Það er þó bót í máli og ánægjulegt, að þó nokkrir kanínubændur hafa náð
mjög góðum tökum á framleiðslunni, bæði hvað varðar afurðir og fóðrun.
Þeir hafa staðfest þá skoðun mína, að með góðri verkun innlendra
hráefna, einkum heyi, megi draga verulega úr kostnaði vegna aðkeypts
fóðurs og auka þannig framlegð eftir hverja kanínu.
Veruleg þörf er fyrir tilraunir á þessu sviði.
Magnús Pálmason, kanínubóndi í Syðsta-Samtúni í Glæsibæjarhreppi í
Eyjafirði, er einn þeirra sem náð hefir mjög góðum tökum á kanínurækt-
inni.
Á s.l. ári hefir hann fengið mjög góðar afurðir af búi sínu og þó haldið
kjarnfóðurgjöf í lágmarki eða um 40 gr á kanínu/dag.
Að hans mati getur vanur maður annast um 600 kanínur á ári.
Markaðshorfur og sala afurða.
Eins og að framan getur var slæm fjárhagsstaða „Fínullar“, óvissa um
áframhaldandi rekstur og sein skil á afurðaverði höfuðástæðan fyrir
dvínandi áhuga á kanínurækt.
Nú hefir staða fyrirtækisins styrkst verulega með auknu hlutafé, með
samningum þess við kínversk fyrirtæki um samstarf í vinnslu og sölu á
kanínuafurðum og markaðsöflun.
Afkastageta verksmiðjunnar ætti að nýtast mun betur og reksturinn að
verða léttari. Gæði íslensku fiðunnar, sem eru mun rneiri en þeirra
kínversku, ættu einnig að stuðla að betri framleiðsluvörum og tryggja
íslenskum kanínubændum betra verð.
Eigendur Fínullar hf. eru áfram þeir sömu, þ.e. Álafoss, Byggðasjóður
og kanínubændur, hver að þriðja hluta, og hafa þeir útvegað verulegt aukið
hlutafé.
Grundvallarmarkmið með þessari hlutafjáraukningu hlýtur að vera eins
og áður, að skapa úrvinnslumöguleika íslenskrar kanínufiðu og auka
þannig atvinnutækifæri í landinu.
Sala á framleiðsluvörum verksmiðjunnar á s.l. ári var mjög góð, einkum á
innanlandsmarkaði.
Vonir standa til að betra lag komist fljótlega á skil afurðaverðs og gert er
ráð fyrir að núverandi verðlagning afurða, þ.e. 85 þýsk mörk fyrir hvert kg
fyrsta flokks fiðu, gildi áfram.
Eftirfarandi tafla á að sýna „brúttóafurðir" af kanínu og verðmæti
afurðar eftir að fóðurkostnaður hefir verið dreginn frá.
Reiknað er með ofangreindu verði, þ.e. 85 mörk/kg, fyrsta fl. fiðu, og að
heimaaflað fóður sé notað svo sem kostur er. Miðað er við verð á fóðri og
fiðu í janúar 1990.