Búnaðarrit - 01.01.1990, Blaðsíða 127
Skipting á áburði og fræi:
1989
Landgræðslugirðingar.................................. 368.00 tonn
Beitilönd............................................. 120.00 tonn
Afréttarlönd.......................................... 656.00 tonn
1988
493.00 tonn
79.00 tonn
516.00 tonn
Samtals 1144.00 tonn 1088.00 tonn
Alls var dreift úr flugvélum Landgræðslu ríkisins 1466.77 tonnum af
áburði og fræi 1989, en 1723.87 tonnum 1988, sem skiptist þannig:
1989 1988
Landgræðslugirðingar....................... 551.33 tonn 37.6% 901.35 tonn 52.3%
Beitilönd.................................. 208.00 tonn 14.2% 231.75 tonn 13.4%
Afréttarlönd............................... 656.00 tonn 44.7% 538.00 tonn 31.2%
Ræktuð lönd................................. 12.00 tonn 0.8% 9.80 tonn 0.6%
Annað........................................ 39.44 tonn 2.7% 42.97 tonn 2.5%
Samtals 1466.77 tonn 100% 1723.87 tonn 100%
Áburðar- og fræmagnið, sem dreift var 1989, er aðeins minna en 1988, og
þó varð aðeins aukning á því magni er dreift var vegna Blönduvirkjunar og
kostað er af Landsvirkjun.
Sé sá áburður, sem Landsvirkjun greiðir vegna Blönduvirkjunar, dreginn
frá, verður áburðarmagnið, sem dreift er fyrir landgræðslufé, um 1100
tonn, en mest var dreift árið 1975, eða rúmlega 3100 tonnum.
Eins og fram kemur í töflu er hlutdeild Iandgræðslugirðinga í áburðar-
dreifingu komin niður í 37.6%, sem stafar af því að landgræðslufé verður
sífellt ódrýgra, en áburðardreifing á afrétti, beitilönd og ræktuð lönd er að
hluta til kostuð af bændum.
Eins og áður starfaði ég sem framkvæmdastjóri Fóður- og fræframleiðsl-
unnar í Gunnarsholti. Graskögglar hafa ekki verið framleiddir í Gunnars-
holti undanfarin þrjú sumur, en birgðir eru nú uppseldarog húsnæðið notað
af Landgræðslunni. Óvíst er hvort graskögglaframleiðsla hefst á ný, þannig
aö lítill tími fer orðið í þetta starf.
Að venju var nokkuð um fundarhöld, en annars hef ég mest unnið við
skrifstofustörf yfir vetrartímann fyrir Landgræðsluna og einnig fyrir Átak í
landgræðslu. Allnokkur tími fór í að sinna málum vegna landbrots af
völdum fallvatna, en yfirstjórn þeirra mála var flutt til Landgræðslunnar
mcð lagabreytingum 1979. Á vegum Átaks í landgræðsluskógum hef ég
starfað í fagnefnd. í október ferðaðist ég ásamt Snorra Sigurðssyni hjá
Skógræktinni um Norður-, Austur- og Suðurland. í Árnes-, Rangárvalla-,
Gullbringu- og Kjósarsýslu, fór Brynjólfur Jónsson með mér til að líta á
svæði, sem til greina koma til plöntunar í vor á vegum Átaksins. Alls
skoðuðum við 51 svæði og gáfum umsagnir um þau.
125