Búnaðarrit - 01.01.1990, Blaðsíða 189
GREINARGERÐ:
Á síðustu árum hafa orðið miklar breytingar í íslenzkum landbúnaði. I
stað óheftrar framleiðslu hefur verið tekin upp stjórn á helztu t'ramleiðslu-
vörum landbúnaðarins, sem byggist á tiltekinni heimild til sérhvers bónda,
sem stundar sauðfjár- og mjólkurframleiðslu.
Þessar miklu áherzlubreytingar kalla fram ný viðhorf í starfsemi þeirra,
sem annast leiðbeiningar í landbúnaði. Meðan framleiðslan var óheft,
beindust verkefnin einkum að stækkun búanna, sem kallaði eftir marghátt-
uðum umbótum í aukinni ræktun, bættum húsakosti og vélvæðingu.
Þegar landbúnaðurinn er nú háður ströngum takmörkunum í fram-
leiðslu, verður meginviðfangsefni þeirra, seni annast leiðbeiningar, að
finna sem hagkvæmastar leiðir í framleiðslu búanna og á þann hátt að leitast
við að tryggja afkomu bænda, svo sem framast er kostur. Því miður hefur
leiðbeiningaþjónustunni ekki tekizt að aðlaga störf sín að þessum breyttu
viðhorfum, svo sem vert væri. I þeim efnum veldur mestu, að frá því, að
stjórn búvöruframleiðslunnar hófst, hefur mikill hluti starfsemi búnaðar-
sambandanna færzt til þeirra verkefna, sem lúta að framleiðslustjórn.
Jafnframt hefur dregið stórlega úr tekjum þeirra, sem leitt hefur til þess, að
ýmsum mikilvægum verkefnum hefur ekki verið unnt að sinna.
I þessum efnum má nú merkja breytta tíma. Hver, sem framvindan í
framleiðslumálum kann að verða, má ælla, að verkefni búnaðarsamband-
anna við stjórn framleiðslunnar séu nú minni en var, á meðan sú skipan
mála var að festast í sessi. Sá mikilvægi stuðningur, sem Framleiðnisjóður
landbúnaðarins veitir til þessa bókhaldsverkefnis og starfsemin byggist á
tvö fyrstu árin, réð úrslitum um, að unnt var að hrindaþessum verkefnum af
stað. Tillögur, sem byggjast m.a. á pólitísku samkomulagi um nýja tekju-
stofna búnaðarsambandanna, liggja nú fyrir, svo að tæpast er annað ætlandi
en þau mál nái fram að ganga innan tíðar. Á þessum meginviðhorfum
byggjast þau markmið, sem hér eru fram sett.
Mál nr. 27
Erindi Sigurðar Þórólfssonar, Jóns Hólm Stefánssonar, Jóns Guðmunds-
sonar og Bjarna Guðráðssonar um heilbrigði í umhverfi á bújörðum og
verndun lífríkis.
Málið afgreitt með eftirfarandi ályktun, sem samþykkt var með 24 sam-
hljóða atkvæðum:
Búnaðarþing telur brýnt, að nú þegar verði snúizt til varnar gegn
útbreiðslu á sýkingu vegna Salmonella smits og fleiri sýkinga af völdum
smitbera vegna lélegrar umhirðu sorphauga, fiskúrgangs, úrgangs frá
sláturhúsum og ófullnægjandi frágangs við frárennsli o.fl.
187