Morgunn


Morgunn - 01.12.1953, Page 7

Morgunn - 01.12.1953, Page 7
MORGUNN 85 að bjöllutegund (skorkvikindi) væri að eyðileggja fyrir sér trén í garðinum og þóttist hafa fundið merki þess í garði sínum. f desembermánuði sat lávarðsfrúin fund hjá hinum fræga miðli, frú Leonard, og þar komu fram skila- boð frá unga framliðna manninum til föður hans. Skila- boðin voru þau, að faðirinn ætti að taka niundu bókina í þriðju hillu, talið frá vinstri til hægri við dagstofudyrn- ar. 1 bókinni ætti hann að lesa á bls. 37. Lávarðsfrúin fór heim með skilaboðin til mannsins síns, en hvorugt þeirra vissi, hvaða bók þetta væri. Gengið var að bókinni og hún opnuð. Þetta var fræðibók um trjágróður eftir T. H. Kelman, og á bls. 37 er sagt frá þeim skaðsemdum, sem bjöllutegund sú, sem Glenconner lávarður var að óttast, gæti valdið á trjágróðri. Presturinn veit, að til eru aðrar skýringar en sú spíritistíska á fyrirbrigði þessu, en jafnljóst er honum hitt, að hér gat ekki verið um svik miðilsins að ræða. Að jafnaði eru menn engan veginn á eitt sáttir um út- hlutun Nóbels-verðlaunanna. Þó mun úthlutun friðarverð- launa Nóbelssjóðsins að þessu sinni naumast hafa valdið deilum, en friðarverðlaununum var að hálfu, eins og kunnugt er, úthlutað hinum fræga mannvini, presti, lækni, trúboða og orgelsnill- ingi, Albert Schweitzer. Ungur að árum sneri hann baki við þeirri heimsfrægð, sem beið hans í Evrópu sakir af- burða gáfna hans og snilligáfu, og hann fór suður til Lam- barene í Afríku til þess að boða þar kærleika Krists með þjónustu og líknarstarfsemi. 1 40 ár hefur líknarstöð hans þar verið starfrækt og geysilega umfangsmikið kærleiks- starf verið unnið. Og til hjálpar fyrir vesalingana þar syðra verður friðarverðlaunum hans varið. Albert Schweitzer er friðarpostuli, og starf hans er borið uppi af kærleika Krists og lotningu fyrir lífinu, lífi bæði manna og málleysingja. Hann hefur m. a. ritað mikið um heim- speki og guðfræði og fylgir eindregið frjálslyndri stefnu í guðfræðinni. Hann hefur barizt fyrir því, að kirkjan Nóbels- verðlaun.

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.