Morgunn - 01.12.1953, Síða 12
DR. SIGURGEIR SIGURÐSSON,
BISKUP YFIR ISLANDI,
LÁTINN.
★
Sú fregn vakti þjóðarsorg, að herra biskupinn, dr. Sigur-
geir Sigurðsson, væri látinn. Hinn ástsæli biskup virtist
enn búa yfir svo miklum starfskröftum, að þjóðin vonaði
að mega njóta hans lengi enn.
Hann andaðist snögglega af hjartaslagi í heimili sinu
13. október síðastliðinn.
Með herra Sigurgeiri hófst að ýmsu leyti nýtt timabil
í kirkjusögu Islands. Hann var maður hins nýja tíma, eld-
legur í áhuga sínum, brennandi í starfinu fyrir kirkju
Krists og ævinlega ódeigur til að leggja á nýjar brautir.
Hann var þess vegna í ríkum mæli biskup þjóðarinnar
og átti óvenjulegum vinsældum að fagna. Er hann sat
fundi erlendra kirkjuhöfðingja, var framkoma hans bæði
frjálsleg, hispurslaus og virðuleg í senn. Hann var hinn
ágætasti fulltrúi kirkju sinnar og þjóðar, hvar sem hann
kom fram.
Með mörgu móti hefur komið í ljós, hve djúpan söknuð
andlátsfregn hans vakti. Útför hans var ein hin allra
virðulegasta og allra fjölmennasta, sem fram hefur farið
í landi voru. I kalsaveðri stóðu mannþyrpingarnar með-
fram götunum, sem líkfylgd hans fór um. Með hljóðlátri
sorg og mikilli þátttöku kvaddi þjóðin biskup, sem hún
hafði unnað.
MORGUNN hefur sérstaka ástæðu til að minnast herra
Sigurgeirs með þakklæti og djúpri virðingu. Á námsárum