Morgunn - 01.12.1953, Blaðsíða 13
MORGUNN
91
sínum í guðfræðideild há-
skólans gerðist hann sann-
færður spíritisti, og hann
var of drenglundaður mað-
ur til að vilja þegja um
það, fyrst sem prestur og
síðar sem biskup. Þegar
hann tók við biskupsdómi,
sendi hann að gömlum sið
hirðisbréf til prestanna, og
þar komst hann m. a. svo
að orði:
„Spíritismi (andahyggja)
og theosofi (guðspeki)
hafa verið hlutfallslega
áhrifaríkari í landi voru en
í flestum, ef ekki öllum,
vestrænum löndum. Þjóð-
in er dulhneigð og fékk
fljótlega áhuga á að kynn-
ast því, hvað hér væri á
ferðinni. Spíritisminn hefur
veitt huggun og djörfung
ótal mörgum syrgjandi og
sorgmæddum sálum. Hann
hefur sannfært marga
meðal vor um, að látnir
lifa, að lífið heldur áfram
og að endurfundir eru
framundan. Hann hefur
vakið marga af svefni efn- Dr- Sigurgeir SigurSsson bisitup.
ishyggjunnar og breytt öllu viðhorfi lifsins í augum þeirra,
gefið þeim nýja veröld.
Ég á spíritismanum mikið að þakka. Það er mikill mun-
ur á því, hvort hann birtist á æðsta og göfugasta stigi,
eða í hinum ófullkomnustu og lægstu tilraunum, sem oft