Morgunn


Morgunn - 01.12.1953, Page 19

Morgunn - 01.12.1953, Page 19
MORGUNN 97 sér. Hugur hans var opinn og frjór, það var eins og alltaf væri eitthvað, sem kallaði á hann. Tengsl hans við lífið voru óvenju rík, og þó var hann ekki einhyggjumaður í þeim skilningi, að hann horfði á jörðina eina. Engan mann, fortakslaust engan mann, vissi ég öruggari en hann um að jarðlífið væri ekki annað en forgarður að annarri tilveru. Með öllum hita sinnar heitu, sterku sálar gat hann tekið undir, þegar ástvinur hans, Einar H. Kvaran, þýðir erindi eftir Longfellow svo: Og dauðinn, hann er aðeins breyting öittum, og okkar jarðlíjssvið er útborg ein frá Drottins dýrðarhöllum, og dauðinn bara hlið. Séra Kristinn var sannfærður um, að hliðinu hefði verið lokið upp, ekki aðeins fyrir þeim, sem þegar eru farnir yfir landamærin, heldur einnig fyrir oss, sem enn bíðum hérna megin hliðsins. Þessa sannfæring gáfu honum sálar- rannsóknir nútímans, en þær urðu langkærasta hugðarefni hans síðari árin. Og þær urðu honum ekkert einkamál. Af ölium hita sinnar þróttmiklu og sterku sálar gerðist hann boðberi þeirra. Frá byrjun átti hann náið samstarf um það mál við þá þrjá, sem urðu ástvinir hans, þá Einar H. Kvaran, próf. Harald Níelsson og próf. Þórð Sveinsson geðveikralækni. Svo lengi sem hann gat staðið í fætur, starfaði hann af eldlegum áhuga í Sálarrannsóknafélagi fslands. Hann var lengi í stjórn þess, var forseti þess og ritstjóri MORGUNS um skeið, eftir Einar H. Kvaran, og heiðursfélagi þess síðari árin. Því hefur stundum verið haldið fi’am af kirkjunnar mönnum, að spíritisminn væri einhver ómerkileg trúar- bragðauppbót. Enginn, sem þekkti séra Kristin, gat látið sér koma það í hug í sambandi við hann. f fyrsta lagi hélt hann því stöðugt fram, að spíritisminn væri þekking en 7

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.