Morgunn


Morgunn - 01.12.1953, Side 44

Morgunn - 01.12.1953, Side 44
122 MORGUNN dómi, sem kynnzt hafa þeim bezt, ekki skýrð á annan veg en svo, að framliðnir menn standi á bak við þau. Annað mál er svo það, að ef menn eru fyrirfram ráðnir í að vilja ekki ganga inn á að um annan heim geti verið að ræða, má lengi finna einhver undanbrögð og fráleitar skýringar. Dr. Westwood vildi lengi vel ekki ganga inn á að hugs- anlegt væri, að um framliðna menn gæti verið að ræða að baki fyrirbrigðunum. En að lokum sannfærðist hann þó um það. Af hinni ágætu bók hans verður ekki séð, að nokkurt eitt fyrirbrigði hafi sannfært hann, eða nokkur ein tegund þeirra. Honum fór eins og svo mörgum öðrum, sem við sálarrannsóknir hafa fengizt, að það var heild fyrirbrigðanna, sem sannfærði hann. Presturinn gerði síðan tilraunir með aðra miðla, fyrst. og fremst með frú Wriedt, sem var mjög frægur miðill fyrir sjálfstæðar raddir og hélt miðilsgáfu sinni merkilega vel, þótt hún væri orðin mjög við aldur, þegar dr. West- wood kynntist henni, og átti þá langan og merkilegan starfsferil að baki. Hann sat aðeins einn fund með frú Wriedt. En Sir Oliver Lodge, sem um alllangt skeið hafði unnið með henni með stórfelldum árangri, sagði dr. West- wood sjálfur, að hann þyrði að ábyrgjast fullkominn heið- arleik hennar. Hún var fræg af löngu samstarfi sínu með mikilhæfum vísindamönnum, sem höfðu skrifað um hana heiiar bækur. En hún var bæði of mikil mannkostakona og einnig of greind til þess að miklast af slíku. Hún var ákaflega yfirlætislaus og hún var sannfærð um að af æðri máttarvöldum hefði sér verið trúað fyrir köllunarverki, sem henni var alla ævi heilagt. Hjá henni rættist sú ósk dr. Westwoods að starfa með miðli, sem ekki félli i trans, meðan fyrirbærin gerðust. Hún féll aldrei í trans og sýndi ekki nokkurn minnsta vott sefjunar eða svefns á tilraunafundunum. Fundir hennar stóðu yfir í um það bil hálfa aðra klukkustund, og allan tímann spjallaði hún við tilraunamennina um

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.