Morgunn


Morgunn - 01.12.1953, Page 74

Morgunn - 01.12.1953, Page 74
152 MORGUNN geti það, sem hann gat, í þessum efnum sem öðrum, en sömu lífslögmálum laut hann, sem aðrir menn. 1 öllu var hann bróðir vor. Annað vil ég fullyrða, en það er, að sú vitneskja hefur til vor borizt, að heimkoman á fyrsta sviðið, sem við oss tekur eftir burtförina af jörðunni, þegar vér erum búin að ná fullum tökum á að skynja það svið, er flestum mönnum fagnaðarrík. Engan veginn öllum mönnum, en flestum. Þótt ekki sé annars gætt en þess, að þar finnum vér, að vér erum laus undan byrði holdslíkamans, og lifum í líkama, sem ekki finnur til þreytu, sérsauka eða sjúk- leika, ætti það að vera oss skiljanlegt, að dauðinn flytur oss fagnaðarrík umskipti. Þetta verður oss þó ljósast, þegar þess er gætt, að í flestum tilfellum er langvarandi sjúk- dómur og stundum kvalafullt dauðastríð undanfari and- látsins, og þar að auki stundum þreytandi hrumleiki, elli og hrörnun. Það var tilhugsunin um þetta, sem fyllti eitt af þjóðskáldunum slíkum fögnuði, að það kvað á bana- sænginni um þá óumræðilegu unaðssemd, sem það hlyti að vera, að ,,vakna ungur einhvern daginn, með eilífð glaða kring um sig“. Sú mjúkhenta miskunn, sem mætir hinni nýkomnu sál hinu megin við landamærin, er oss spíritistum þekkingar- atriði, en hún hefur ekki verið túlkuð eins og skyldi, og þess vegna hafa mennirnir óttazt dauðann og kvalizt af óvissu um hið komanda. Hinn háa kærleika hans, sem þeirri miskunn ræður, hafa mennirnir ekki getað skilið, hann var svo hátt fyrir ofan allt, sem þeir þekktu, eða gátu sjálfir látið í té, að þeir bjuggu sér til afskræmis- legar myndir af ógnum og kvölum, sem væri refsing hins reiða dómara. Þeir gátu ekki skilið þá „rausn Guðs“, sem þeir áttu auðvelt með að túlka, Grímur Thomsen og séra Haraldur Níelsson.

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.