Morgunn


Morgunn - 01.12.1953, Side 77

Morgunn - 01.12.1953, Side 77
MORGUNN 155 og stundum erfiða baráttu fyrir þeim hlutum, sem hér hjá oss þarf að kaupa dýru verði og stundum miklum sársauka? Eru ekki hin jarðnesku peninga- og viðskipta- mál sá þungi og sári fjötur, sem gerir fjölmargra líf ófrjálst, þvingað og jarðbundið, og heftir andlegan þroska þeirra, sjálfstæði og manndóm? Treystumst vér til að neita því, að eins og nú er ástatt í heiminum er það með- ferð mannanna á þessum hlutum, auðlindum jarðarinnar, sem hvað mestu böli veldur á jörðunni, hernaði, morðum og flestum skuggalegustu löstunum, sem á jörðunni þríf- ast? Þessi mál eru þannig leyst á næsta tilverusviðinu, að fyrir rætur þeirra er tekið og hugarorku einstaklingsins er gefið undursamlegt, skapandi vald. En með þessum hætti, með þessari algeru lausn frá hinum lægri og gróf- ari tegundum lífsbaráttunnar, eru skapaðir möguleikar fyrir slíkri fegurð, samræmi og friði, að þeir hinu megin segja, að vér, sem enn búum við hina jarðnesku lífsbaráttu, getum enga hugmynd gert oss um þá möguleika til yndis- leiks, sem þetta skapi í lífi þeirra. Og þó ættum vér, sem þekkjum það böl, sem er afleiðing hinna jarðnesku fjár- mála, að geta skilið hvílík blessun lausnin frá því hlýtur að vera fyrir sambýli mannanna. ,,Hvert fer þú?“ Mörgum, sem sakna látins vinar, verður það harmsefni, að þeir hugsa, að sá, sem er skyndilega hrifinn út úr jarðneska ástvinahópnum, og á ef til vill engan náinn vin í hinum heiminum, muni bera í brjósti sáran söknuð eftir jarðnesku vinunum, sem hann var hrifinn frá, eða jafn vel sorg. Af samtölum við þá, sem ástvinum hafa verið sviptir, og svo hefur staðið á um, veit ég að þetta muni vera nokkuð áleitin spurning við marga, enda er þetta engan veginn neitt óskynsamleg spurning: mun framliðinn maður, sem engan náinn vin á hinu megin við landamærin, og átti hér í heimi örðugt með að þýðast ókunnugt fólk, ekki verða einmana í hinum heiminum, þrátt fyrir það, að þar eru margir reiðubúnir til hjálpar og liðsinnis?

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.