Morgunn


Morgunn - 01.06.1947, Page 52

Morgunn - 01.06.1947, Page 52
46 MORGUNN en þegar ég er kominn fram á gólf, verður mér litið á rúmið og sé þá líkama minn, þar sem hann liggur sem dauður væri í rúminu. Ég stari á hann litla stund, og verður mér ekki um sel, en geng að rúminu og leggst ofan á lík- amann og fer að soga mig inn í hann. Eftir litla stund er allt komið í samt lag, en ég finn að ég dreg andann nokkuð þyngslalega. Ég hugsa með mér, að fyrst ekki sé erfiðara að yfirgefa líkamann en þetta, sé það bezt að reyna á nýjan leik. Eftir litla stund er ég kominn fram á gólf, en þá alklæddur, en fötin voru svartur ,,Jaket“ og röndóttar buxur, eins og tízkan var þá. Ég líð út um dyrnar, niður stigann og alla leið út á götu, held svo áfram niður í bæ, og staðnæmist fyrir utan glugga á húsi í Kirkjustræti, þar sem kunningi minn bjó, og ætlaði að vita, hvort ég gæti látið hann verða mín varan. En í því ég ætlaði að framkvæma þetta, sé ég hvar tveir menn ganga austur götuna, og datt mér þá í hug, að það sé betra að slást í fylgd með þeim, og vita hvort þeir finni ekki nærveru mína, en í því ég ætlaði að ganga til þeirra, var eins og kippt væri í mig, svo ég tókst á loft og sveif á milli þeirra. Ég lít til baka til að sjá, hvort þeir hafi orðið mín varir, en svo virtist ekki. Það er svo ekki að orðlengja það, en ég veit ekki fyrr til en ég er kominn inn í herbergið mitt, en þá sé ég einhverja veru, sem er við fótagaflinn á rúmi mínu. Ég verð hálf hvumsa við, en skeyti því þó engu, en fer að samlagast líkamanum, og gekk þaö í alla staði vel. Þegar ég hafði komizt í samt lag, var drepið á dyr hjá mér. Er það þá sambýliskona mín, og kemur hún með kaffi og kökur til að hressa mig á, því að hún hafði orðið vör við að ég væri heima. Ekkert varð mér meint við þessa för, nema hvað mér fannst ég vera hálf þreyttur, þegar ég gat hreyft likamann. Nú var eftir að fá skýringu á veru þeirri, sem sat við rúmið, þegar ég kom heim, en hana fékk ég á fundi í Sálarrannsóknafélagi fslands í febrúar 1919. Þar flutti

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.