Morgunn - 01.06.1947, Page 58
52
MORGUNN
um, að lífið á hinum ýmsu tilverusviðum annars heim sé
svo margbreytilegt, að ekki sé nokkur sanngirni að ætlast
til, að svör allra séu samhljóða í aukaatriðum, en í megin-
atriðum ber þeim saman, það vita allir þeir, sem við þessar
rannsóknir hafa fengizt.
öllum, sem samband hefir náðst við, ber saman um,
að tilverusviðin séu mörg, og að hver maður fari, eftir
líkamsdauðann, á það svið, sem bezt svari þeim þroska,
sem hann hafði náð hér í heimi. Þetta er í algerri andstöðu
við ríkjandi hugmyndir ýmissa leiðandi mánna í trúar-
efnum, þar sem um annað á ekki að vera að ræða, en eilífa
sælu eða eilífa útskúfun. öllum ber þeim einnig saman
um, að miskunn Guðs vaki jafnt yfir öllum, hvort sem er
á æðstu eða lægstu sviðunum, en vanþroska sálir eigi
erfiða leið fyrir höndum og líðan þeirra verði ekki sem
glæsilegust fyrst í stað — mismunandi lengi — eftir
dauðann.
Það mun hafa verið í danskri bók, að ég
Samgöngutæki las þá staðhæfingu, að á vissu sviði ann-
og næring. ars heims þyrftu menn að neyta ávaxta
til þess að viðhalda líkama sínum, og að
samgöngutæki væru nausynleg til þess að komast leiðar
sinnar. Þegar ég lagði þessa spurningu fyrir látna vini
mína, hlógu þeir að henni og sögðu: Við fáum næringuna
úr andrúmsloftinu, er við öndum að okkur. Og samgöngu-
tæki þurfum við engin önnur en okkar eigin huga. Spurn-
ing: Hvernig farið þið þá að því, að komast þúsundir milna
á fáum augnablikum? Svar: 1 fyrstu getum við þetta ekki,
eða vitum ekki að við getum það. Við þurfum að læra að
þjálfa hugann, svo að hægt sé að beita honum á þennan
hátt, en þá er þetta enginn vandi. Þú hugsar þér t. d., að þú
viljir fara til Spánar. Þú einbeitir huga þínum að þessu
marki, og þú veizt, að þér tekst það. Þá ertu kominn þangað
á sama augnabliki, Fjarlægðimar hafa ekkert að segja.