Morgunn - 01.06.1947, Blaðsíða 68
62
MORGUNN
nesku ástvinina að sýnilegum návistum." ... „Hvernig getur
þér yfirleitt dottið í hug, að það tefji fyrir þroska okkar,
að fá að vera með þeim, sem við elskum og hafa samband
við þá, fá að varpa sólargeislum inn í sálir þeirra. Er ekki
einmitt aðalsælan og aðalþroskinn í því fólginn, að gjöra
aðra hamingjusama? Hvemig gæti ég verið sæl, ef þér
liði illa? Þá mundi ég enn sitja í sama farinu. En vegna
þess, að þú veizt, að ég er hjá þér og elska þig, er mér
auðveldara að hjálpa þér og lyfta sjálfri mér upp um
leið. Sorg þín og barnanna myndi hafa haldið mér niðri,
og í stað þess að þroskast, hefðir þú e. t. v. stigið skrefin
aftur á bak.“
A
Gleðifregn
mun það vera öllum vinum sálarrannsóknamálsins á Is-
landi, að Sálarrannsóknafélag Islands hefir nú keypt hálfa
húseignina við Sólvallagötu 3, sem áður var heimili Einars
H. Kvarans. Er þegar farið að vinna að nauðsynlegum
breytingum á eigninni.
Oss hefir lengi verið það ljóst, hve mjög það hefir staðið
félaginu fyrir þrifum, að það hefir ekkert heimili átt fyrir
sttarfsemi sína, enga miðstöð fyrir málefnið hér á landi.
Féleysi hamlaði lengi, að unnt væri að ráðast í að kaupa
hús eða byggja, en fram úr því hefir greiðst fyrir velvilja
fjölmargra vina málefnisins og rausn. Er nú þessi ágæta
eign að mestu skuldlaus í höndum félagsins, en mikils þarf
enn við, fjársöfnun þarf að halda áfram, þvi að næsta skref-
ið er að hugsa um veglegan fundarsal.
Oss er það ánægjuleg tilhugsun, að geta nú gert heimili
Einars Kvarans að heimiii sálarrannsóknamálsins álslandi.