Morgunn - 01.06.1947, Síða 82
76
MORGUNN
en leiðangursins var von til Kumassi, var mér sagt af
einum þjóna minna, að landsstjórinn hefði komið til borg-
arinnar um hádegið, en nú var klukkan 1,30. Klukkustundu
síðar var mér sagt þetta sama í þorpinu af rosknum höfð-
ingja, og tekið skal það fram, að hann hafði fengið góða
menntun. Þegar ég brosti að staðhæfingum hans um þetta,
því að vitanlega hugði ég þetta vera þvaður eitt, benti hann
mér ofur hógværlega á, að þarlendum mönnum bærust
fregnir um eitt og annað miklu fyrr en hvítum mönnum,
„fréttaþjónusta okkar er miklu hraðvirkari en ykkar,“
bætti hann við. Tekið skal það fram, að efri hluti símalin-
unnar var í umsjá konunglegu verkfræðingadeildarinnar
og strandlínurnar voru eingöngu notaðar af stjórnarvöldun-
um. Hann virtist hafa rétt fyrir sér, því að um kvöldið
var þessi frétt tilkynnt í opinberu símskeyti, en það skal
tekið fram, að útilokað er, að þessir menn hafi fengið vitn-
eskju um komu landsstjórans með venjulegum hætti.
Hvernig þetta gerist er öllum ófræddum hulið, en menn
þeir, sem hér um ræðir, eru meðlimir í leynilegum félags-
skap þarlendra manna. Ég hefi fengið að vita eftir góðum
heimildum, að hæfileikar þessara manna til skyggni og
fjarskynjunar séu vaktir með líkamlegri þjálfun aðeins,
og þegar nemandinn hefir verið fræddur um aðferðirnar
og hann hefir lært að beita þeim, verður hann að iðlca þær
stöðugt til þess að ná fullkomnun í beitingu þessara hæfi-
leika. Þekkingu á þessu virðist skipt i 3 aðgreind stig, og er
sérstökum aðferðum beitt við hvert þeirra, og verður nem-
andinn að njóta fræðslu sérstaks kennara á hverju þeirra,
en leyfi til slíks náms er þó aðeins veitt með leyfi æðsta
stjórnanda félagsskaparins, en mjög sterk leynd hvílir yfir
starfsemi hans. Og þeir munu vera mjög fáir, sem taldir
eru hæfir til að hljóta fullkomna fræðslu um leyndardóma
hans. Þessi stig virðast skiptast þannig:
1. Skyggnihæfileiki.