19. júní


19. júní - 19.06.1989, Blaðsíða 23

19. júní - 19.06.1989, Blaðsíða 23
Ljósmynd: Rut Hallgrímsdóttir Skyndilega fleygði hún honum frá sér og fannst sér misboðið að þurfa að velja á þenn- an hátt. Ólíkar tilfinningar toguðust á innra með henni. En augnablikið leið hjá eins og ský á himninum og næstum án umhugsunar tók hún aftur upp bakpokann og lauk við að setja í hann. Hún fór inn í eldhúsið og náði í ávexti, hnetur og vatn til að taka með sér. Þar sem hún stóð í hálf óhugnanlegri birt- unni frá opnum ísskápnum ákvað hún að hringja í Kam. „Hver í tjandanum er þetta?“ Það var úrill rödd Karls sem svaraði. Kira var búin að gleyma að síminn væri hans megin við rúm- ið. „Kira, ég þarf að tala við Kam.“ „Hún er sofandi.“ „Nú, vektu hana þá,“ svaraði Kira reiði- lega. Karl tautaði eitthvað á hinum endan- um, en augnabliki síðar sagði óendanlega syfjuleg rödd Kam halló. „Kam, þetta er Kira. Ég er að fara.“ Hún þagnaði augnablik en sagði svo „og ég vil að þú komir með mér.“ Það var dauðaþögn á hinum enda línunnar. „Kam?“ „Ertu veik, Kira? Og er David ekki heima?“ „Já,“ svaraði Kira og skildi allt í einu hvað systir hennar var að fara, „komdu fljótt og taktu með þér töskur.“ „Vertu alveg róleg, Kira. Ég kem eins og skot.“ „Hvar eigum við að hittast? Þú getur ekki komið hingað.“ „Fyrir framan Pyttinn,“ hvíslaði Kam í símann. „Krána?“ „Já, þú veist, á horninu." Kira skildi ekki hvíslið í henni en vissi hvar staðurinn var. „Allt í lagi, eftir tíu mínútur þá.“ „Já, bless.“ Kráin var nálægt heimili Kam, en þangað var rúmlega tíu mínútna gangur frá Kiru. IC.IRA tók upp bakpokann, gekk að dyr- unum en hikaði. Átti David ekki eitthvað inni hjá henni? Bréf eða koss að skilnaði? Hún vissi að hann myndi reyna að finna hana, eða það hélt hún að minnsta kosti. Hún tók bæklinginn upp úr vasanum og nálgaðist öskubakkann. Hún kveikti í bréf- inu svo þar væri vísbending. Aftur varð hún hikandi. Hvað ef David fyndi hana og kæmi með alla félagana úr Heilbrigðisráðuneytinu með sér? Myndu þeir rústa þorpið sem Kira vonaðist til að finna? Hún gat ekki tekið þá áhættu. Hún lét bæklinginn brenna þar til ekki var annað en aska í öskubakkanum. Síðan læddist hún út um dyrnar, læsti á eftir sér og stakk lyklinum inn um bréfalúguna í þeirri vissu að ef allt gengi að óskum myndi hún ekki hafa þörf fyrir hann oftar. Kam beið hennar fyrir utan rökkvaða glugga vínstofunnar. Allt í kring eigraði fólk um ýmist í hópum eða tvö og tvö saman, allir litarhættir og allar manngerðir blönduðust saman í iðandi mannhafi New Hope borgar. Kam tók undir handlegg hennar og horfði brosandi í augu hennar. „Það er Vesturhlið- ið,“ hvíslaði hún. „Haltu í hendina á mér svo ég týni þér ekki.“ Kira kinkaði bara kolli og hjartað barðist um í brjóstinu. Mannfjöldinn umlukti þær þegar þær héldu út á iðandi götuna. Neonljósaskiltin sendu krefjandi skilaboð út í næturmyrkrið á meðan hlátrasköll og óp fylltu loftið. Hugur Kiru hringsnérist í litadýrðinni og lífinu sem hrærðist allt í kring. Þetta var í fyrsta sinn sem hún var á ferli í þessum bæjarhluta að nóttu til. Þær nálguðust Vesturhliðið. Þar var aðeins einn vörður. „Vegabréfin,“ sagði hann ólundarlega. Þær afhentu manninum þunnar leðurbækur. Hann gaut augunum fyrst á þær og síðan á myndirnar í vegabréf- unum og skrifaði nöfnin þeirra á veggtöflu. „Áfangastaður?“ „Amert,“ svaraði Kam blátt áfram. Kira reyndi að ná tökum á öflugum skjálfta sem greip hana. Hún fékk í magann við tilhugs- unina um að hann kynni að neita að hleypa þeim í gegn. Henni svelgdist á en reyndi að leyna því með því að gera sér upp hósta. Vörðurinn leit tortryggnislega upp. „Ástæða heimsóknarinnar?“ spurði hann og starði beint á Kiru. Hún veitti athygli gráum augum hans og hvasst, þunnt nefið virtist undirstrika skapgerðina og gerði að verkum að fölt og mjóslegið andlit hans varð enn ófríðara. Tunga hennar var sem límd við góminn. „Móðir okkar liggur fyrir dauðanum. Okkur barst skeyti um að koma tafarlaust til Amert til að . .“ „Hvert er nafn hennar?“ sagði hann í
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.