19. júní


19. júní - 19.06.1989, Page 24

19. júní - 19.06.1989, Page 24
skipunarróm og snéri sér að tölvustjórn- borði. „Nafn?“ stamaði Kira. „Já, heyrirðu eitthvað illa? Þú skalt ekki halda að ég sé einhver einfeldningur. Fólk fær ekki að fara úr borginni án ástæðu. Ég ætla að athuga í skránum hvort þið eigið nokkra móður í Amert.“ Sagan um deyjandi móðurina varð úrelt strax í grunnskólanum. Nafnið strax eða ég hringi í landamæraverð- ina!“ „Cory Jochild,“ skaut Kam inn í með óþolinmæði í röddinni. „Ef þú ætlar að vera að þessu í alla nótt, þá verður hún dáin áður en við komumst þangað.“ Vörðurinn snéri sér að stjórnborðinu án þess að virða hana viðlits. Kira fylgdist með því þegar grænt letrið birtist á skjánum. Hann stöðvaði rununa í joðunum. „Götuheiti.“ „Maple,“ svaraði Kam. Hann leit á þær með megnustu fyrirlitningu. Kira reyndi að láta á engu bera þegar bros tók að leita í munnvikin. „Þið megið halda áfram,“ sagði hann höstuglega og afhenti þeim vegabréfin, „en ég læt landamæraverðina í Amert vita af ferðum ykkar.“ „Já, gerðu það endilega," sagði Kam með öndina í hálsinum. „Það eru ekki einu sinni landamæraverðir þar.“ Pær hlógu með sjálf- um sér þegar hliðið opnaðist með rykk og gengu í gegn. Nóttin líkt og þagnaði þegar hliðið lokað- ist á eftir þeim. Hinir þykku veggir sem um- luktu borgina komu í veg fyrir að hávaðinn bærist út fyrir þá. Kiru fannst hún skyndi- lega missa allan mátt og hún hrasaði. „Er ekki allt í lagi?“ „Hvað erum við að gera?“ hvíslaði Kira og óskaði þess að hún væri aftur komin heim í hlýtt rúmið sitt hjá David. „Við ætlum að finna frelsi okkar,“ svaraði Kam mjúklega. Kira leit á hana. Hún hafði ekki séð systur sína ljóma á þennan hátt síðan þær voru börn. Kira brosti en brast um leið í grát. „David, ég fór frá David. Ég kvaddi hann ekki einu sinni.“ Hún sá hann fyrir sér þar sem hann svaf, laus við allar áhyggjur. Auð- sveipni lians gagnvart lífinu var í slíkri mót- sögn við hennar eigin tilraunir til að finna það jafnvægi, sem í raunveruleikanum var ekki til. Þótt hún hataði allt það sem gerst hafði á síðustu klukkustundum og var hluti af heimi Davids, þá vissi hún að hún myndi alltaf elska hann. Hún grét þungum ekka. Kam hélt henni að sér og strauk hunangslit- að hárið blíðlega. „Nú skaltu kveðja,“ sagði Kam og snéri systur sinni í átt að hvelfdri borginni. Kira einblíndi á hvolfþakið, þessa óendanlega víðfeðmu vin á jörðu, sem var að öðru leyti líkust eyðimörk. I huganum kvaddi hún með blíðuhótum manninn sem hún hafði þekkt í tíu ár og búið með og elskað í fimm ár. Síðan snéri hún sér við aftur, í átt að víðáttumikilli auðninni, hinu óþekkta. Kam lagði hand- legginn á öxl hennar og þær hófu gönguna í vesturátt, til Barrens og þeirra kvenna sem höfðu kosið að láta börnin sín vaxa og dafna í móðurkviði. VERA BLAÐ FYRIR KONUR SKRIFAÐ AF KONUM ÁSKRIFTARSÍMI: 22188 24

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.