19. júní - 19.06.1989, Page 35
Ljósmynd: Mimsy M0ller
VON MANNKYNSINS"
Alltaf skyldi hún hafa á réttu að
standa. Fyrir meira en tuttugu árum
var hún farin að tala um offjölgun og
umhverfisvandamál og sá fyrir að
tölvur myndu gera fólk atvinnulaust í
framtíðinni.
Þótt mamma hafi verið mjög sterk
kona og mikill persónuleiki sé ég
samt núna að hún var ekki jafnréttis-
sinnuð. Hún leyfði föður mínum
alltaf að hafa síðasta orðið!
Læknanám, gifting,
barneignir og dvöl í
Bandaríkjunum
Ég var ellefu ára þegar ég ákvað að
verða læknir því ég vildi geta hjálpað
fólki. Ég hafði einnig mikinn áhuga á
líffræði og því hvernig líkaminn starf-
aði.
Læknanámið hóf ég árið 1956, þá
sautján ára gömul, og var ein tíu
stúlkna í læknadeild sem í voru eitt
hundrað og fjörtíu nemendur.
Ég útskrifaðist árið 1961, giftist og
eignaðist þrjú börn í einni striklotu.
Næstu ár skiptust á milli Ástralíu
og Bandaríkjanna. Ég vann við lækn-
ingar hluta úr degi þar til árið 1969 að
við fórum til Bandaríkjanna þar sem
við dvöldum til ársins 1972. Þann
tíma vann ég við Harvard háskólann.
Þegar við komum heim árið 1972
hóf ég nám í barnalækningum við
Barnaspítalann í Adelaide. Síðan
fórum við enn til Bandaríkjanna árið
1975 og ég hóf aftur kennslu við
Harvard og var sérgrein mín sjúk-
dómurinn „Cystic fibrosis“, sem er
einn algengasti erfðasjúkdómur
barna.
Læknar gegn kjarnorkuvá
Hvenær hófstu baráttu þína að
friðarmálum?
Árið 1978 hóf ég baráttu gegn
kjarnorkuvopnum og fór að halda
fyrirlestra víða um heim, sérstaklega
í þeim tilgangi að fá hópa innan
35