19. júní


19. júní - 19.06.1989, Síða 46

19. júní - 19.06.1989, Síða 46
Þórunn: Við verðum að ganga í gegnum þetta tímabil. Við áttum svo lítið fyrir nokkrum árum og svo allt í einu kemur auðurinn. Ólafur: Það er djúpstæðara en þetta. Ég hef kynnst Norðmönnum. Þeir kjósa að byrja vinnu fyrr á morgnana til að geta verið lausir kl. 4 og þá fara allir á skíði eða iðka aðra útivist. Eftirvinna er fórn í þeirra augum. Þórunn: Þeir búa við annað efna- hagskerfi, stöðugleika, litla verð- bólgu . . . Hanna Maja: Hér heima áttu fárra kosta völ, hér er ekki hægt að stóla á leiguhúsnæði, allir verða vesgú að byggja. Ólafur: Ég er viss um að þetta er viss vítahringur. Af því að við erum reiðubúin til að vinna 10 eða 12 tíma þá þarf ekki að skipuleggja vinnuna. Fyrirtækið hefur ódýrt vinnuafl sem er á vinnustaðnum og ef stjórnanda dettur eitthvað í hug að láta gera þá bara grípur hann til þess, sama hvað klukkunni líður. Hanna Maja: Nú verð ég aftur að koma að körlum og konum — þetta er ekki skipulag sem konur bjuggu til. Og allir kjarasamningar eru komnir út í ógöngur. Ólafur: Þetta er nú líka eitthvað sem búið er að koma inn hjá körlum. Þeim finnst þeir vera að svíkjast um ef þeir eru heima. Þórunn: Ekki getur sjálf fyrirvinn- an bara setið heima! Ólafur: Eða, já þetta er atvinnu- strúkturnum að kenna. Og þar hafa konur vissulega haft lítið að segja. Þær eiga ekki í öllu samleið með körlunum í stéttarfélögunum svo þær eiga stundum samtímis í höggi við þá og þær eiga í höggi við atvinnurek- endur. Að því leyti eru þær kannski samstæðari stétt heldur en nokkur önnur stétt í þjóðfélaginu í dag því þær eru yfirleitt í láglaunastörfunum. Og það eru alltaf karlar, sem þær þurfa að kljást við, m.a. vegna þess að stéttarfélögin eru ekki kynskipt. „Sterkir" einstaklingar Hanna Maja: Það er nú það sem gerir þessa baráttu svona erfiða og hefur alltaf gert. Við erum í rauninni 46 „Þœr eiga ekki í öllu samleið með körlunum í stéttar- félögunum svo þœr eiga stundum sam- tímis í höggi við þá og þœr eiga í höggi við atvinnurekendur. ... Og það eru alltaf karlar sem þœr þurfa að kljást við../‘ „Það er nú það sem gerir þessa baráttu svona erfiða og hefur alltaf gert. Við erum í rauninni alltaf að berjast við eiginmenn okkar, feður, syni, brœður... “ alltaf að berjast við eiginmenn okk- ar, feður, syni, bræður . . . Þórunn: En getum við stillt þessu svona upp, konur og karlar. Verðum við ekki að fá þá í lið með okkur? Ms: Hvað er búið að vera að reyna það lengi án árangurs? Ólafur: Það er náttúrulega hægt að fá menn í lið með sér á mismunandi hátt. Stéttarfélögin á sínum tíma fengu atvinnurekendur með sér á endanum með því að þau fengu þá til að samþykkja eitt og annað. En þeir urðu að slást allan tímann. Þórunn: Ég set konur og karla ekki upp á sama máta og þú setur launþega og atvinnurekendur. Soffía: Það finnst mér fyllilega réttmætt að gera. Jón: Þetta er jú samkeppni á milli valdahópa. Þórunn: Ef kona er að vinna sig upp hjá einhverju fyrirtæki, lít ég ekki á það sem svo að hún sé að vinna móti körlunum sem fyrir eru. Þetta er spurning um hæfari eða sterkari einstakling og það skiptir ekki máli hvort það er karl eða kona. Ms: Matið á því hvor sé sterkari, er kynbundið. Við teljum konurnar jafn hæfa einstaklinga — ef ekki hæf- ari reyndar! — samfélagið gerir það ekki. Hanna Maja: Allar fyrirmyndirnar eru karlkyns. ímynd hins sterka karls. Þórunn: Auður Auðuns, Ragn- hildur Helgadóttir — þetta eru sterk- ir einstaklingar. Hanna Maja: Já, við getum nefnt einstakar konur en í það heila tekið gegnir öðru máli. Þeir blasa alls stað- ar við, þessir grásprengdu í jakkaföt- unum! Þessar einstöku konur hafa að vísu gert mikið gagn í að breyta ímyndinni, jafnvel Margrét Thatcher þó maður sé auðvitað algjörlega ósammála henni. Þrátt fyrir allt segja stelpurnar: ég gæti kannski orðið for- sætisráðherra líka. Fyrir nokkrum árum hefði það verið óhugsandi. Þórunn: Það er áreiðanlega okkar verk að breyta þessari ímynd. Ms: Þá komum við að öðru um- ræðuefni, nefnilega því hverju konur vilja breyta í pólitík, hverju þær geti breytt. Því vissulega viljum við gera hlutina öðru vísi, ekki satt. Ein-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.