19. júní

Ataaseq assigiiaat ilaat

19. júní - 19.06.1989, Qupperneq 56

19. júní - 19.06.1989, Qupperneq 56
KONURí T1MARNIR ERU EKKI SVO BREYTTIR Bseptember á þessu ári eru 28 ár síðan Anna Vil- hjálms söng fyrst opinberlega, en allan þennan tíma, með litlum hléum, hefur hún sungið með danshljómsveitum, bæði eigin og með mætum mönnum eins og Magnúsi Ingimarssyni, Svavari Gests og Gunnari Ormslev. Lengst hlé varð á söng hennar kringum 1980, er hún fór í aðgerð á eyra, en hún þjáist af sama heyrnarsjúkdómi og Diddú og er búin að missa heyrn á öðru eyranu eins og hún. Ég hitti Önnu í Glæsibæ þar sem hún æfir dansleikjaprógramm. Hún var í miðju kafi að syngja Crazy, hið fallega lag Willies Nelson, sem Patsy Cline söng svo yndislega . . . og Anna kemur mér á óvart — þægilega. Hún fer létt með lög eins og „My boy Lollipop", Stormskers- sönginn „Bless“ og „I will survive“ úr pússi Glor- iu Gaynor. Greinilegt er að þessi kona er á heimavelli í því sem hún er að gera og gengur að söngnum eins og myndarlegar húsmæður að laugardagsverkunum . . . og það er einmitt það sem ég fæ á tilfinninguna æ sterkar eftir því sem ég tala lengur við Önnu, að söngurinn er órjúfan- legur partur af hennar tilveru — ekki afmarkað- ur ferill, aðskilinn frá öðru hennar amstri í lífs- baráttunni. Mér detta í hug orð sem hafa verið höfð eftir Glenn Campbell: „Ég er ekki sveitasöngvari, heldur sveitastrákur sem syngur“. Um Önnu væri hægt að segja af sama glettnislega lítillæti og Glenn Campbell: Anna er ekki söngkona, held- ur kona sem syngur. Pegar Anna heyrir hver hinn viðmælandi minn í þessu blaði er, segir hún: „Ég er nú ekkert miðað við Röggu — það er alveg tvennt ólíkt. Ég hef ekki þá náðargáfu sem hún hefur í sambandi við tónlist, né kunnáttu. Ég les ekki einu sinni nótur. Ástæðan fyrir að ég lenti í þessu er að ég kunni svo mikið af lögum og textum þegar ég var krakki og unglingur að það var alltaf kallað á mig þegar þurfti einhvern til að syngja lag og lag á skemmtunum. Ég hef lítið raddsvið, svona tvær áttundir, en ég nýti það sem ég hef, sérstaklega í seinni tíð, því að ég hef aldrei haft eins gaman af aðsyngjaognú. — Héráðurfyrrvarengin alvara í þessu hjá mér. Maður á auðveldara með að gefa af sér eftir því sem maður verður þroskaðri . . . og eftir að maður eignast börn. Nú söngst þú inn á plötur hér áður fyrr — hefurðu engan áhuga á að endurtaka það? — Það voru nú fáar plötur — en auðvitað er það minn draumur að syngja inn á plötu — fyrir sjálfa mig. Enda myndi ég gefa hana út sjálf . . . ég hef a.m.k. ekki fengið nein tilboð, segir Anna hlæjandi. Ætli ég myndi ekki kalla hana „Frá mér til þín“, eða „Hinar mörgu hliðar Önnu Vilhjálms" og innihaldið yrði blandað; kánt- rýlög, rokk og ný lög . . . í rólegri kantinum. Við sjáum til. Finnst þér fólkið eða músíkin hafa breyst í gegnum tíðina? — Ekki músíkin, en fólk er gagnrýnna og læt- ur það í ljós, hvort sem um er að ræða músíkina sjálfa eða fötin manns — það fylgist vel með og segir hvað því finnst. Ég kann vel við það. En það er eins og allir vita nokkuð drukkið á dans- leikjum hér og maður spyr sjálfan sig svo sem stundum undir lok ballsins að því til hvers maður sé að leggja æfingarnar og allt erfiðið á sig. En þá bendir maður sjálfum sér á að fólk hafi ekki verið undir eins miklum áhrifum þegar það kom, og sumir kunna að meta það sem maður er að gera. Það er jafnvel nóg að sjá eina manneskju í hópn- um sem hlustar, og metur þá hugsanlega vinnuna sem að baki liggur. Ég gæti vel hugsað mér að syngja á rólegum stöðum og litlum, en svo gefur 56
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

19. júní

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.